text

Kolbeinn Hólmar Stefánsson

Dósent Efnahagsfélagsfræði
Félagsvísindasvið
Félagsráðgjafardeild
Tölvupóstur
Sími
Aðsetur
Oddi -  O-128
Sérsvið
Ágrip

Ég er dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Ég varði doktorsritgerð í félagsfræði frá Oxfordháskóla haustið 2013. Starfaði á Hagstofu Íslands á árunum 2013-2020. Um mitt ár 2020 tók ég við núverandi stöðu. Rannsóknir mínar eru að mestu megindlegar. Þær kenningar sem ég nota hvíla á aðferðafræðilegri einstaklingshyggju. Er fyrst og fremst Popperisti sem lítur á hlutverk félagsvísinda að gefa eins rétta lýsingu á veruleikanum og mögulegt er og prófa mögulegar skýringar á þeim. Ef þú villt nota gagnrýna kenningu eða kenningar úr meginlandsfélagsfræði (t.d. Bourdieu) er ég líklega ekki rétti leiðbeinandinn fyrir þig. Ég er þátttakandi í nokkrum erlendum rannsóknarverkefnum sem lúta að atvinnuþátttöku eldri borgara og lífsgæðum barna. Ég á aðild að European Social Policy Analysis Network, sem er tengslanet evrópskra sérfræðinga sem eru framkvæmdastjórn Evrópusambandsins til ráðgjafar um velferðarmál. Ég sit í stjórn Norðurlandadeildar European Social Policy Network. Ég hef umtalsverða reynslu af samstarfi við stjórnsýslu, bæði ríkisins og á sveitarstjórnarstigi, sem og ýmsum hagsmunasamtökum.

Námsferill
  • 2013 DPhil Oxfordháskóli Félagsfræði
  • 2004 MSc. Oxfordháskóli Félagsfræði
  • 2002 BA Háskóli Ísland Almenn bókmenntafræði
Námskeið kennd 2026 - 2027
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil