Nemendur og kennari í sálfræði
Þjálfunarmiðstöð meistaranema í klínískri sálfræði

Stúdentaklíník Sálfræðideildar er þjálfunarstöð meistaranema í klínískri sálfræði. Þar er háskólanemum og börnum þeirra boðið upp á sálfræðiþjónustu. Sálfræðinemarnir veita þjónustuna undir handleiðslu sérfræðinga í klínískri sálfræði.

Ráðgjöfin hefur verið starfrækt síðan 2013. Hlutverk ráðgjafarinnar er fyrst og fremst að þjálfa meistaranema í klínískri sálfræði í greiningu, mati og meðferð á algengum geðröskunum.

Ráðgjöfin er opin á meðan á kennslu stendur, september til desember og janúar til maí.

Fyrsta viðtal er alltaf greiningarviðtal og tekur oftast um 90 mínútur. Í þessu viðtali er farið yfir sögu, það er farið í gegnum staðlað geðgreiningarviðtal og metið hvort þörf sé á skammtímameðferð sem meistaranemendur geta veitt eða hvort málinu þurfi að vísa annað.

Meistaranemar veita hugræna atferlismeðferð fyrir fullorðna við þekktum vandamálum svo sem:

  • Þunglyndi
  • Félagsfælni
  • Ofsakvíða
  • Svefnleysi
  • Einfaldri fælni
  • Áfengismisnotkun

Við tökum einnig til greina önnur vandamál ef þau eru afmörkuð og henta til skammtímameðferðar.

Meðferð er að oftast 10 tímar, en styttri við vissum vandamálum svo sem svefnleysi, einfaldri fælni og áfengis misnotkun.

Fyrir börn háskólanema bjóðum við upp á hegðunarráðgjöf og kvíðameðferð. Þó ekki greiningu svo sem ADHD eða einhverfugreiningar.

Viðtal kostar 2.500 kr, en viðtölin eru mislöng eftir því hvað er gert í viðtali.

Hefðbundið meðferðarviðtal er oftast 60 mínútur en viðtöl með berskjöldunaræfingum geta verið 90-180 mínútur.

Greiningarviðtal er alltaf 90 mínútur.

Á haustin byrja meistaranemar í sálfræði að æfa sig í meðferð við kvíða. Besta leiðin til þess er að takast á við afmarkað vandamál eins og einfalda fælni. Því vantar okkur alltaf háskólanema og börn háskólanema í september með köngulóafælni.

Einkenni köngulóafælni eru:

  1. Mikill kvíði eða hræðsla við köngulær
  2. Köngulær vekja oftast samstundis kvíða eða hræðslu
  3. Forðast oftast köngulær
  4. Kvíðinn eða hræðslan er meiri en köngulær gefa tilefni til.
  5. Hræðslan hefur verið til staðar í meira en 6 mánuði

Meðferðin sem er beitt er einnar lotu meðferð við sértækri fælni. Inngripið er því stutt og árangursríkt. Í fyrstu er farið í matsviðtal sem tekur um 40 mínútur. Síðan, oftast um viku síðar, er farið í gegnum meðferðina. Meðferðin er í einni lotu sem stendur í 90-180 mínútur.

Þeir sem hafa áhuga á þessu geta sent tölvupóst beint á Þórð Örn Arnarson, forstöðumann Sálfræðiráðgjafar Háskólanema.

Sálfræðiráðgjöf háskólanema hefur ekki aðstöðu til að veita bráðaþjónustu.

Í neyðartilvikum er hægt að hafa samband við bráðamóttöku geðdeildar.

Tengt efni
""
Children watching birds at shore
Hafðu samband
Stúdentaklíník Sálfræðideildar
Eftir samkomulagi
Forstöðumaður
Þórður Örn Arnarson
""

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil