1. gr.
Nýdoktorar og rannsóknasérfræðingar við Háskóla Íslands, í a.m.k. 50% starfi að meðaltali yfir almanaksár í þeim starfsheitum, eiga kost á greiðslum úr Vinnumatssjóði nýdoktora fyrir nýsköpun og árangur í rannsóknum umfram vinnuskyldu á liðnu almanaksári.
Um skilgreiningu starfsheitanna nýdoktor og rannsóknasérfræðingur vísast til ákvörðunar samráðsnefndar háskólaráðs um kjaramál frá janúar 2016, en samkvæmt þeirri ákvörðun er starfsheitið „nýdoktor“ skilgreint með þeim hætti að um sé ræða störf við rannsóknir við háskóla að afloknu doktorsprófi (Ph.D.). Þegar fimm ár eru liðin frá doktorsprófi breytist starfsheitið í „rannsóknasérfræðingur“.
2. gr.
Háskólaráð ákveður árlega fjárveitingu til sjóðsins.
3. gr.
Nýdoktorar og rannsóknasérfræðingar geta árlega sótt um greiðslur úr sjóðnum fyrir árangur í rannsóknum á liðnu almanaksári. Skulu þeir skila skýrslum um störf sín á því ári eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Umsóknum ber að skila til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands. Matsnefndir skipaðar af stjórn matskerfis, ásamt vísinda- og nýsköpunarsviði, meta rannsóknastörf umsækjenda til stiga samkvæmt lið A í matskerfi opinberra háskóla.
4. gr.
Við úthlutun dragast 14 stig frá rannsóknastigum og miðast greiðslur við þau stig sem umfram eru. Ekki er greitt úr vinnumatssjóði vegna áunninna stiga fyrir lokaritgerðir s.s. doktors- og meistararitgerðir, eða fyrir önnur verk sem sérstaklega eru undanskilin í matskerfi opinberra háskóla. Séu rannsóknastig umfram 14 stig fleiri en 60 reiknast þau stig sem umfram eru í veldinu 0,8.
5. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 1. mgr. 5. gr. og 5. mgr. 15. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, sbr. reglur fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009, öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 9. október 2026.
Silja Bára R. Ómarsdóttir.