Verkfræðinemar frumsýna kappakstursbílinn TS15
Verkfræðinemar við Háskóla Íslands afhjúpa TS15, nýjan kappakstursbíl, á Háskólatorgi fimmtudaginn 9. apríl kl. 17. Team Spark liðið, eins og það kallast, fer með bílinn nýja í alþjóðlegu kappaksturs- og hönnunarkeppnina Formula Student sem haldin verður á Silverstone-kappakstursbrautinni í Englandi í júlí. Lið Háskóla Íslands vann einmitt til verðlauna á brautinni í fyrra. Að lokinni afhjúpun bílsins verður frumsýnd heimildamynd um þátttöku liðsins í keppninni í fyrra.
Um 40 nemendur í verkfræðideildum Háskóla Íslands hafa frá því í haust unnið að þróun og smíði kappakstursbílsins TS15, m.a. í samstarfi við nemendur úr Listaháskóla Íslands. Að baki bílnum liggja mörg þúsund vinnustundir og er liðið staðráðið í að fylgja eftir góðum árangri í kappaksturs- og hönnunarkeppninni á síðasta ári, en þá hlaut Team Spark sérstaka viðurkenningu sem bestu nýliðarnir.
Þónokkur endurnýjun hefur orðið í liðinu frá síðasta ári en sem fyrr leggur það áherslu á rafknúinn og umhverfisvænan bíl. Keppt er í tveimur flokkum í Formula Student á Silverstone-brautinni. Í flokki 1 eru lið dæmd út frá bæði hönnun einstakra hluta bílsins og akstri hans á kappakstursbraut en í flokki 2 eru hönnun og áætlanir kynntar en ekki er keppt í kappakstri. Team Spark hyggst keppa í flokki 1 líkt og í fyrra.
Við afhjúpun kappakstursbílsins TS15 á Háskólatorgi munu félagar í Team Spark segja stuttlega frá þróunar- og hönnunarvinnunni. Auk þess flytja Ragnheiður Elín Árnadóttir atvinnu- og nýsköpunarráðherra og Nótt Thorberg, markaðsstjóri Marels og fulltrúi bakhjarla Team Spark, stutt ávörp. Það gerir einnig Hilmar Bragi Janusson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, sem jafnframt stýrir athöfninni.
Að lokinni afhjúpun bílsins, eða kl. 18.15, verður heimildamynd Stefáns Drengssonar um hönnun keppnisbíls síðasta árs og för Team Spark liða á Silverstone sumarið 2014 frumsýnd í stofu HT-102 á fyrstu hæð Háskólatorgs.