Í síðustu viku komu nemendur í fiskeldisnámi, bæði diplómanámi og grunnnámi, ásamt meistaranemum í MAR-BIO-meistaranámi og námi í vatnalíffræði við HÍ á Hólum, saman í verklega námslotu á vegum Fiskeldis- og fiskalíffræðideildar. Námslotan var hluti af námskeiðinu Æxlun fiska (Fish Reproduction) og gaf nemendum tækifæri til að kynnast æxlun fiska í verki.
Camille, umsjónarkennari námskeiðsins, og Marie, aðstoðarkennari, leiddu námslotuna. Markmiðið var að tengja fræðilega þekkingu á æxlun fiska við raunverulega reynslu með fjölbreyttum verklegum verkefnum.
Nánari skoðun á þroskun Atlantshafslaxins
Með víðsjám skoðuðu nemendur mismunandi þroskunarstig Atlantshafslaxins (Salmo salar), allt frá frjóvguðum hrognum til seiða eftir klak. Þau fylgdust með þeim áhugaverðu breytingum sem eiga sér stað á fyrstu þroskunarstigunum laxins og æfðu vísindalega athugun með því að gera nákvæmar vísindalegar teikningar af sýnum á fyrstu þroskunarstigum eftir klak.
Einnig var fjallað um mismunandi þroskunarferli, meðal annars hvort lirfustig sé hluti af þroskunarferlinu eða ekki, og hvernig umhverfisþættir á borð við hitastig hafa bein áhrif á þroskunarhraða dýra sem eru misheit.
Verkleg þátttaka í frjóvgun bleikju í klakstöðinni á Hólum
Einn af hápunktum námslotunnar var heimsókn í bleikjukynbótastöðina á Hólum, þar sem Einar Svavarsson og samstarfsfólk hans tóku á móti nemendum. Þar fengu nemendur tækifæri til að taka sjálf þátt í frjóvgun hrogna og tengja þannig líffræðilega þekkingu sína við framkvæmd bleikjueldis og umhirðu hrogna.
Hver nemandi fékk að æfa sig í að kreista hrogn úr bleikjuhrygnum sem voru fimm til sjö ára gamlar og bæta svilum úr hængum við til að framkvæma frjóvgunina.
Nemendur skoðuðu einnig frjóvguð hrogn og fylgdust með áframhaldandi þroskun þeirra. Þá ræddu þau daglega umhirðu hrogna og fósturvísa áður en þau eru seld og send frá kynbótastöðinni.
Kynfæri fiska, líffærafræði og merking seiða
Í annarri verklegri vinnustofu krufðu nemendur bleikjur. Með því að skoða fiska á mismunandi stigum kynþroska lærðu þau að greina æxlunarfæri og önnur líffæri og líffærahluta, auk þess sem þau öðluðust betri skilning á hlutverki þeirra og æxlunarferli fiskanna.
Nemendur fengu einnig tækifæri til að æfa merkingu bleikjuseiða. Merkingar eru mikilvægt verkfæri í rannsóknum á fiskum og í fiskeldi. Nemendur svæfðu fiskana samkvæmt viðurkenndum verklagsreglum, merktu þá og tryggðu að seiðin næðu sér aftur eftir meðhöndlunina.
Verkleg reynsla, vísindarannsóknir og nýsköpun
Námslotan fól einnig í sér hópverkefni þar sem nemendur undirbjuggu kynningar á vísindagreinum um nýlegar framfarir í rannsóknum á æxlun fiska. Með því að vinna saman kynntu þau sér nýjustu vísindarannsóknir á sviðinu og efldu færni sína í að lesa, greina og fjalla á gagnrýninn hátt um vísindagreinar.
Að lokum tóku nemendur þátt í verkefni þar sem kannað var hvernig nýta má gervigreind í vísindastarfi. Þau skoðuðu möguleg not hennar, ræddu takmarkanir tækninnar og æfðu sig í að setja fram skýrar og markvissar fyrirspurnir til að fá gagnlegri og áreiðanlegri niðurstöður í tengslum við námsefnið.
Að læra með því að framkvæma, miðla þekkingu og kynnast nýjum sjónarhornum
Verklega námslotan gaf nemendum úr ólíkum námsleiðum gott tækifæri til að læra hver af öðrum, efla verklega færni og öðlast dýpri skilning á æxlun fiska. Eins og oft vill verða í verklegu námi vöktu verkefnin margar spurningar hjá nemendum og leiddu til fróðlegra umræðna.
Við þökkum öllum sem komu að skipulagningu og framkvæmd námslotunnar kærlega fyrir framlag sitt, sem og nemendum fyrir áhuga á náminu og virka þátttöku.
Þetta var sannarlega fróðleg og lærdómsrík vika í Fiskeldis- og fiskalíffræðideild HÍ á Hólum!