Samsýning framhaldsskólanna

Um 220 nemendur úr þrettán framhaldsskólum víðs vegar af landinu taka þátt í Samsýningu framhaldsskólanna sem verður haldin dagana 27. nóvember til 3. desember á Sögu, nýju húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, við Hagatorg. Formleg sýningaropnun fer fram föstudaginn 27. nóvember kl. 13:00 - 14:00.

Á Samsýningunni gefst nemendum tækifæri til að sýna almenningi hugmyndir sínar og sköpun af hvaða tagi sem er og efla tengslanet sitt til framtíðar. Markmið sýningarinnar er að draga fram mikilvægi þess að styðja við og efla samþættingu í svokölluðum STEAM-greinum (vísindum, tækni, verkfræði, listum og stærðfræði) í íslensku samfélagi og menntun á sviði sjálfbærni og nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs.


Samsýning framhaldsskólanna

Sem fyrr segir taka um 220 nemendur þátt í sýningunni og hátt í 200 verkefni af öllu tagi verða til sýnis. Samsýningin gefur jafnframt nemendum og kennurum tækifæri á að kynnast starfsemi annarra framhaldsskóla og efla tengsl sín á milli.

Sýning verður opin daglega 27. nóv. - 3. des

  • Frá kl. 10:00 - 18:00 virka daga
  • Frá kl. 10:00 - 17:00 helgina 29. - 30. nóv.

Eftirfarandi skólar taka þátt í Samsýningu framhaldsskólanna:

  • Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
  • Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
  • Fjölbrautaskóli Suðurnesja
  • Fjölbrautaskóli Vesturlands
  • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
  • Borgarholtsskóli
  • Menntaskóli Borgarfjarðar
  • Menntaskóli í tónlist
  • Myndlistaskólinn í Reykjavík
  • Tækniskólinn
  • Verzlunarskóli Íslands
  • Verkmenntaskólinn á Akureyri
  • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Öll hjartanlega velkomin!

Nánari upplýsingar á vef sýningarinnar

Facebook-viðburður

Samsýning framhaldsskólanna
Natalia Stankiewicz, nemi við Menntaskóla Borgarfjarðar, með verk sem hún kallaði Gæs með kórónu (lítil prinsessa)sem er samansett úr þrívíddarprentun og badmintonfjöðrum og var til sýnis í fyrra.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil