hinsegin fánar

Háskóli Íslands hefur skilgreint hinsegin fánadaga og mun framvegis flagga sex sinnum á ári af slíku tilefni við Aðalbyggingu skólans. Með þessu vill Háskólinn undirstrika mikilvægi mannréttinda og sýna samstöðu með baráttu hinsegin fólks.

Flaggað var í fyrsta sinn samkvæmt þessu nýja fyrirkomulagi í dag, 20. nóvember, á minningardegi trans fólks. Sá dagur hefur verið haldinn síðan 1999 til að heiðra minningu þeirra sem hafa látið lífið vegna ofbeldis og fordóma gegn trans fólki.

Meðal þeirra sem drógu fána að húni við Aðalbyggingu skólans voru þær Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Hrefna Árnadóttir, forseti Q – félags hinsegin stúdenta.

„Háskólasamfélagið er fjölbreytt og við leggjum áherslu á jafnrétti, mannréttindi og öryggi allra okkar nemenda og starfsfólks. Með hinsegin fánadögum sýnir HÍ stuðning sinn við baráttu hinsegin fólks í verki nú þegar sótt er að mannréttindum fólks víða um heim og vart hefur orðið við bakslag í umræðu um málefni hinsegin fólks hér á landi,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir.

„Hinsegin samfélagið byggist fyrst og fremst á samstöðu og þeirri lífsgleði sem felst í því að fá að vera þú sjálft. Einföld merki eins og fáninn eru þörf áminning um þá hlýju sem við berum til hinsegin samfélagsins, þá sérstaklega á minningardegi trans fólks,“ segir Hrefna Árnadóttir.

minningadagur transfólks
Arnar Gíslason og Sveinn Guðmundsson, jafnréttisfulltrúar, Bryndís Jóhanns ritstjóri, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor, Hrefna Árnadóttir, forseti Q – félags hinsegin stúdenta, og Jaina Gable, varaforseti. MYND/Kristinn Ingvarsson.

Hinsegin fánadagar Háskólans eru

  • Kváradagurinn, fyrsti dagur einmánaðar (er á bilinu 20.-26. mars)
  • Sýnileikadagur transfólks, 31. mars
  • IDAHOBIT, alþjóðlegur baráttudagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks, 17. maí
  • Hinsegin dagar, í ágúst
  • Dagur vitundarvakningar um málefni intersex fólks, 26. október
  • Minningardagur trans fólks, 20. nóvember

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil