Út er komnar tvær bækur sem marka lok Oddarannsóknarinnar sem staðið hefur síðan árið 2020. Önnur bókin nefnist Oddi á Rangárvöllum. Þættir úr sögu höfuðbóls. Hin nefnist Medieval Oddi in Iceland as a Place of Power and Learning. Clerics, Chieftains, and Textual Culture. Aðalviðfangsefni rannsóknarinnar er ritmenning miðalda með áherslu á áhrif Odda á Rangárvöllum á hana og þátt höfðingjaættarinnar Oddaverja í þessari menningu. Hið forna höfuðból Oddi á Rangárvöllum á sér langa og merka sögu en frægðarsól þess reis hæst á tímabilinu 1100–1300 þegar staðurinn var miðstöð valda, kirkju og lærdóms.
Í bókinni Oddi á Rangárvöllum. Þættir úr sögu höfuðbólser safn aðgengilegra greina sem byggja á niðurstöðum rannsóknarinnar og fjalla um íslenskt miðaldasamfélag, menn, menntir og bókmenningu í Odda, en einnig umhverfi og efnahagslegar undirstöður. Ritstjóri er Kristborg Þórsdóttir og útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag.
Medieval Oddi in Iceland as a Place of Power and Learning. Clerics, Chieftains, and Textual Culture fjallar um sama efni og íslenska bókin og er gefin út hjá Brill. Ritstjóri er Helgi Þorláksson í samstarfi við Meghan Korten. Í bókinni er að finna formála og inngang ritstjóra og sex kafla með sautján greinum eftir jafn marga höfunda.
Báðar bækurnar verða kynntar með dagskrá Miðaldastofu Háskóla Íslands í fyrirlestrasal Eddu, föstudaginn 27. nóvember kl. 15:00.
Í stjórn Oddarannsóknarinnar sátu þau Helgi Þorláksson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands, Ármann Jakobsson, prófessor í bókmenntum fyrri alda við HÍ, Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við HÍ, Egill Erlendsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ, og Kristborg Þórsdóttir, fornleifafræðingur við Fornleifastofnun Íslands. Verkefnið naut stuðnings RÍM-sjóðsins sem var stofnaður á 75 ára afmæli lýðveldisins 2019 og styrkti rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda.