RáðstefnaTokyoHólar

ICEEP ráðstefnan um þjálfunarlífeðlisfræði, hreyfingafræði og fleira sem varðar hin ýmsu hestakyn var haldin í Tokyo í Japan dagana 26.-30. október síðastliðinn.

Um er að ræða stærstu alþjóðlegu ráðstefnuna á þessu sviði og er hún haldin á 4 ára fresti á mismunandi stöðum í heiminum.

Háskóli Íslands á Hólum var vel sýnilegur á ráðstefnunni en fjórir einstaklingar frá Hestafræðideild skólans sóttu ráðstefnuna, tveir akademískir starfsmenn og tveir fyrrum nemendur.

Johannes Amplatz fyrsti nemandi sem útskrifaðist með meistaragráðu í hestafræði síðastliðið vor frá Háskólanum á Hólum, hélt erindi um niðurstöður meistaraverkefnisins síns. Hann gerði mælingar á þyngd knapa og hesta, sem og á líkamsmálum hesta sem kepptu á heimsmeistaramóti íslenskra hesta í Hollandi í ágúst 2023 og skoðaði tengsl þessara þátta við árangur í keppni.

Guðrún Margrét Valsteinsdóttir sem útskrifaðist með BS gráðu í reiðmennsku og reiðkennslu frá Háskólanum á Hólum vorið 2022, hélt stutt erindi um sitt BS lokaverkefni, en hún mældi hjartslátt hesta við sundþjálfun í Áskoti. Þetta er í fyrsta sinn sem nemandi við Hestafræðideild fylgir eftir eigin BS rannsókn á alþjóðlega ráðstefnu og kynnir hana þar.

Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir dósent við Hestafræðideild hélt erindi um mjólkursýru í blóði íslenskra skeiðkeppnishesta í endurheimt eftir einn 250 m skeiðsprett. Þessi rannsókn var unnin í samstarfi við prófessor Michael Weishaupt við Háskólann í Zürich í Sviss, Gest Júlíusson og Þóru Höskuldsdóttur við Dýraspítalann í Lögmannshlíð á Akureyri. Það voru alþjóðasamtök íslenska hestsins FEIF sem stóðu fyrir og styrktu rannsóknina.

Víkingur Gunnarsson deildarforseti Hestafræðideildar var einnig þátttakandi í ráðstefnunni og var jafnframt meðhöfundur að rannsóknarniðurstöðum sem kynntar voru á veggspjaldi þar sem fjallað var um efnaskiptasvörun íslenskra hesta eftir þjálfun á hlaupabretti. Það verkefni var samstarfsverkefni milli Háskólans á Hólum og Sænska landbúnaðarháskólans (SLU).

Gerður var góður rómur að erindunum um íslenska hestinn frá Háskóla Íslands á Hólum og ljóst að þau vöktu töluverða athygli á íslenska hestinum og rannsóknarstarfi okkar um hann. Nemendur okkar voru til fyrirmyndar og kynntu sínar rannsóknir með miklum sóma á ráðstefnunni.

Það getur tekið nokkra mánuði að fá rannsóknarniðurstöður samþykktar til kynningar á fræðilegri ráðstefnu sem þessari. Það liðu um níu mánuðir frá því efnið var fyrst sent inn til ritrýni og þangað til ráðstefnan var haldin. Á þessu sama tímabili urðu einnig þær breytingar að Háskólinn á Hólum fékk nýtt heiti Háskóli Íslands á Hólum. Sú breyting átti sér stað þann 1. júlí síðastliðinn og skýrir það af hverju vísað er í bæði eldra og nýrra heiti háskólans í þessari frétt.

Alþjóðlegar ráðstefnur af þessu tagi eru afar mikilvægar til að koma á framfæri rannsóknaniðurstöðum, fræðast um rannsóknir annarra, bera saman bækur sínar, viðhalda tengslum og skapa ný tengsl við aðra vísindamenn sem vinna á sömu fræðasviðum og við hér í Hestafræðideildinni á Hólum.

Hér eru slóðir á:

Vefsíðu ráðstefnunnar: https://iceep.org/

Ráðstefnuritið: https://iceep.org/wp-content/uploads/2026/09/ICEEP12AbstractsComparativeExercisePhysiology2026.pdf

eða: https://brill.com/view/journals/cep/22/6/article-p1_1.xml?ebody=pdf-142062

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil