Jón Atli Benediktsson

Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, er tíunda árið í röð á árlegum lista greiningarfyrirtækisins Clarivate Analytics yfir áhrifamestu vísindamenn heims. Hann nær til þess eins prósents vísindamanna innan hverrar fræðigreinar sem mest er vitnað til í vísindagreinum sem birtast í alþjóðlegum vísindatímaritum. Pedram Ghamisi, sem er í gestastarfi sem rannsóknarprófessor í sömu grein við Háskóla Íslands jafnframt því að vera vísindamaður við Hemholz-stofnunina í Þýskalandi, er einnig á listanum.

Listi Clarivate hefur verið tekinn saman í aldarfjórðung og hefur grundvallast á tilvitnunum í greinar vísindamanna sem finna má í gagnabankanum Web of Science. Miðað er við tilvitnanir síðustu ellefu ár við röðun á listann. Clarivate byggir mat sitt þó ekki eingöngu á tilvitnunum í vísindagreinar heldur einnig ítarlegri gæðaskoðun á gögnunum og mati sérfræðinga.

Listinn tekur til rúmlega 20 ólíkra fræðasviða og í ár eru rúmlega 7.000 vísindamenn á honum. Jón Atli er á listanum vegna framlags síns tengdu jarðvísindum. Ástæða þess er sú að Jón Atli hefur lengi verið í hópi fremstu vísindamanna á sviði fjarkönnunar og stafrænnar myndgreiningar, sem snýst um að taka stafrænar myndir úr flugvélum, drónum og gervitunglum af yfirborði jarðar og vinna úr þeim hvers kyns upplýsingar um breytingar á jörðinni. Þær geta tengst hopun jökla, útbreiðslu eða hopun gróðurs eða dreifingu hrauns, svo dæmi séu tekin.

Vakin er athygli á því að stærstan hluta þess tíma sem mat Clarivate nær til gegndi Jón Atli starfi rektors Háskóla Íslands, eða frá 2015 til 2025. Hann hafði því ekki færi á að sinna rannsóknum í sama mæli og fyrr á vísindaferlinum. Það er til marks um stöðu hans sem vísindamanns í fremstu röð að hann skuli allan þennan tíma halda stöðu sinni á lista Clarivate.

Eftir Jón Atla liggja yfir 400 fræðigreinar og bókarkaflar á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði. Hann hefur enn fremur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, bæði rannsóknir, nýsköpun og framlag til menntunar á sviði fjarkönnunar og hefur m.a. verið tekinn inn í Bandarísku verkfræðiakademíuna.


Pedram Ghamisi

Heildarlista Clarivate Analytics yfir áhrifamestu vísindamenn heims árið 2026 er að finna á vef Clarivate.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil