Gefum íslensku séns
Gefum íslensku séns að störfum á Ísafirði. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson þriðji frá vinstri í aftari röð.

Félagið Gefum íslensku séns hlaut sérstaka viðurkenningu á hátíðarsamkomu í Eddu á degi íslenskrar tungu fyrir stuðning við íslenskuna.

Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, aðjunkt við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, fer fyrir félaginu ásamt Peter Weiss, fyrrverandi forstöðumanni Háskólaseturs Vestfjarða. Verkefnið var þróað við háskólasetrið og hefur Vestfirði sem sitt starfssvæði. Markmið félagsins er vekja almenning til vitundar um að allir íslenskir málhafar séu kennarar og geti hjálpað öðrum að læra tungumálið með því að sýna þolinmæði, skilning og að tala tungumálið í stað þess að nota ensku. Ólafur segir að tregða íslenskra málhafa til að vera almannakennarar reynist oft ein helsta hindrunin í íslenskunámi.

Í rökstuðningi valnefndar viðurkenningarinnar sagði meðal annars: „Þannig leggur verkefnið sitt af mörkum til þess að byggja upp íslenskuvænt samfélag. Gefum íslensku séns er þannig dæmi um mikilvægt grasrótarstarf sem nálgast íslenskukennslu á frumlegan og skilningsríkan hátt, enda er tungumálanám ekki bundið við kennslustofur heldur alltumlykjandi í samfélaginu.“

Ólafur Guðsteinn segist hafa fengið hugmyndina að verkefninu eftir að hafa búið erlendis þar sem enginn afsláttur var gefinn af því að tala mál heimafólks, enda hafi enskukunnátta verið þar takmörkuð. „En samfélagið kom til móts við mig, var hvetjandi og hlustaði með þolinmæði á ófullkomið tungutak og fyrirgaf mér alls kyns mistök og villur, þannig að ég þjálfaðist smátt og smátt í málinu og varð óragur við að tala það þótt ég vissi að mikið vantaði upp á að ég talaði rétt. En þegar ég kom aftur til Íslands og fór að kenna íslensku við Háskólasetur Vestfjarða áttaði ég mig á því að þessu er allt öðruvísi farið á Íslandi.“ Hér sé oftar en ekki skipt yfir í ensku í stað þess að veita málnemum tækifæri til að æfa íslenskuna: „Þannig eru þeir slegnir út af laginu og gefast því oft upp á málinu, enda átta þeir sig fljótt á því að íslenskunám er óþarfa fyrirhöfn og leiðindi því að þeir komast víðast hvar upp með að nota ensku. Það er eitthvað öfugsnúið við það að fólk sem hingað kemur og kann lítið í ensku lærir iðulega meira í henni en íslensku.“

Í fjarveru forsvarsmanna verkefnsins veitti Eiríkur Rögnvaldsson, gjaldkeri félagsins, viðurkenningunni móttöku. Í þakkarávarpi sagði hann að við yrðum að standa okkur mun betur á þessu sviði ef íslenska eigi að vera aðalsamskiptatungumálið í landinu og burðarás samfélagsins: „Við megum engan tíma missa – eftir því sem fleiri setjast hér að án þess að læra íslensku verður auðveldara að lifa hér og starfa án þess að kunna málið, og minni hvatning til að læra það. Við vonumst til að þessi viðurkenning stuðli að því að vekja athygli á markmiðum félagsins, hvetja fólk til að ganga til liðs við það, taka þátt í starfi þess, og gefa íslensku séns. Takk fyrir okkur.“

Gefum íslensku séns og Rannsóknastofa í máltileinkun við Háskóla Íslands efna til pallborðsumræðna með nemendum í íslensku sem öðru máli í Veröld, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00. Þar verður meðal annars rætt um það hvernig gangi að skapa styðjandi námssamfélag fyrir þennan hóp. Í kjölfar pallborðsumræðna verður stofnaður nýr starfskjarni félagsins við Háskóla Íslands en stefnt er að því að félagið færi út starfsemi sína og komi á starfi í anda þess um allt land.

Myndirnar hér að neðan eru úr starfi félagsins og frá afhendingu viðurkenninga í Eddu á degi íslenskrar tungu þar sem Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhenti Vilhjálmi Þorsteinssyni verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og Eiríki Rögnvaldssyni viðurkenningu sem hann tók við fyrir hönd félagsins.

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil