Árleg Spekigleði GPMLS (Graduate Program in Molecular Life Sciences) fór fram á Hólmsvelli í Leiru, Reykjanesbæ, föstudaginn 13. nóvember. Að vanda voru töflukynningar nemenda í forgrunni. Sextán nemendur kynntu rannsóknaverkefni sín fyrir samstarfsfélögum sínum, og fylgdu fjörugar umræður í kjölfar hverrar kynningar. Verðlaun fyrir bestu kynninguna hlaut Sophia Mähr, doktorsnemi á rannsóknarstofu dr. Guðrúnar Valdimarsdóttur dósents.
Tveir gestafyrirlesarar ávörpuðu hópinn: dr. Scott Behie, forstöðumaður rannsóknaáætlana og verkefnisprófessor við Bio2Q-rannsóknastofnunina við Keio-háskóla í Tókýó, og dr. Sigurður Rúnar Guðmundsson, tæknimaður sérhæfðra rannsókna við lífvísindasetur Háskóla Íslands.
GPMLS er vettvangur fyrir framhaldsnema og aðra sem fást við rannsóknir í sameindalífvísindum hér á landi og er ætlað að styðja við og auðga hefðbundið framhaldsnám. Að prógramminu koma framhaldsnemar, nýdoktorar, sérfræðingar og hópstjórar frá Heilbrigðisvísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Landspítala og fleiri rannsóknastofnunum.
Að sögn dr. Elísabetar Frick, verkefnisstjóra GPMLS, gegnir Spekigleðin lykilhlutverki í að efla tengsl nemenda og hópstjóra, auka samvinnu og leggja grunn að þverfaglegum rannsóknaverkefnum. „Það var sérstaklega gaman að sjá hvernig fólk úr ólíkum rannsóknahópum, með mismunandi rannsóknaráherslur, ræddu saman. Fólk velti fyrir sér mögulegu samstarfi, hvað það ætti sameiginlegt og hvar ólík sérsvið gætu nýst í verkefnum hvers annars,“ segir Elísabet.