Anna Agnarsdóttir

Út er komin bókin Bréfið sem leiddi til byltingar eftir Önnu Agnarsdóttur, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Bókin er gefin út í Seríu Sögufélagsins þar sem útgangspunkturinn í hverri bók er tiltekinn atburður sem síðan er settur í sögulegt samhengi, fjallað um forsendur og afleiðingar og þræðir raktir langt aftur og áfram í tíma en hver bók er nákvæmlega 100 blaðsíður að lengd.

Í þessari bók er útgangspunkturinn árið 1807 en þá hafði Magnús Stephensen háyfirdómari þungar áhyggjur af ástandinu á Íslandi. Danir voru komnir í stríð við Englendinga og siglingar til Íslands voru í hættu. Magnús taldi að ef aðflutningar til landsins tepptust gæti hungursneyð vofað yfir landsmönnum. Hann ákvað að skrifa bréf til gamals vinar föður síns frá Englandi, hins háttsetta Íslandsvinar Sir Joseph Banks, og leita aðstoðar hans. Sendibréf Magnúsar til Banks hratt af stað dramatískri atburðarás. Fyrir röð tilviljana leiddi það til þess að enskir sápukaupmenn rændu völdum á Íslandi og lýstu yfir sjálfstæði landsins en yfir það var settur danskur túlkur þeirra, Jörgen Jörgensen. Bréfið sem leiddi til byltingar fjallar um þessa atburði og hinn stutta en viðburðaríka valdatíma Jörundar hundadagakonungs á Íslandi. Hvernig brugðust Íslendingar við byltingunni? Var Jörundur bíræfinn ævintýramaður eða einlægur hugsjónamaður?

Rannsóknir Önnu Agnarsdóttur hafa helst verið á sviði utanríkissögu, samkiptum Íslands við umheiminn og sögu Íslands á tímabilinu 1750-1830, meðal annars verslunarsögu. Helsta rit hennar er Sir Joseph Banks, Iceland and the North Atlantic. Journals, Letters and Documents 1772-1820 og er hún meðal höfunda í Sögu Íslands (þjóðhátíðarútgáfan) og Líftaug landsins. Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010.

Hér er hægt að hlusta á Blöndu, hlaðvarp Sögufélags, þar sem Kristín Svava, ritstjóri Seríunnar, ræðir við Önnu Agnarsdóttur um þessa ótrúlegu atburðarás.

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil