Andrés Nielsen

Andrés Nielsen útskrifaðist með ágætiseinkunn úr meistaranámi í opinberri stjórnsýslu (MPA) við Háskóla Íslands föstudaginn 16. október. Eftir langan starfsferil innan einkageirans vildi hann kynnast betur starfsemi hins opinbera og opna fleiri dyr á vinnumarkaði. Þegar hann lítur til baka stendur fólkið sem hann kynntist og samtölin á námsárunum helst upp úr.

„Ég starfaði lengi innan einkageirans en hafði áhuga á að tengjast starfi hins opinbera. Ég valdi opinbera stjórnsýslu vegna áhuga á málefninu og til að opna fleiri dyr á vinnumarkaði,“ segir Andrés.

Hann segir námið hafa veitt sér bæði nýja þekkingu og tækifæri til að kynnast hæfileikaríku fólki með ólíkan bakgrunn.

„Fyrir vikið er ég víðsýnni en áður, sem nýtist í starfi hvort sem er innan hins opinbera eða innan fyrirtækja.“

Heilbrigt starfsumhverfi og forysta vöktu áhuga

Meðal þeirra viðfangsefna sem vöktu sérstakan áhuga Andrésar voru vellíðan, starfsumhverfi og forysta. Hann nefnir sérstaklega námskeið um þau efni og umræðuna um heilbrigt starfsumhverfi. Þá hafi námskeið um forystu og breytingastjórnun í opinberum rekstri einnig verið áhugavert.

„Þessi námskeið og fleiri sýndu mér að munurinn á hinu opinbera og fyrirtækjum er að mínu mati minni en oft er talað um,“ segir hann.

Umræða um starfsmannalögin í námskeiði um stjórnsýslurétt fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana var einnig eftirminnileg. Þá skiptu hópverkefnin miklu máli enda gafst þar tækifæri til að læra af reynslu samnemenda og víkka sjóndeildarhringinn.

Þegar Andrés er spurður hvað standi helst upp úr á námsárunum er svarið þó einfalt: „Fólkið sem ég hitti á leiðinni og þau áhugaverðu samtöl sem við áttum.“

Tengdi starfsreynsluna við opinbera stjórnsýslu

Í meistararitgerð sinni skoðaði Andrés afmarkaða starfsemi Stjórnarráðsins og tengdi saman fyrri reynslu sína á vinnumarkaði og opinbera stjórnsýslu.

„Segja má að rannsóknarefnið sé óhefðbundið fyrir námið en tengist mikilvægu samtímamáli í rekstri opinberra skipulagsheilda,“ segir hann.

Hann sér tækifæri til að nýta áfram þá þekkingu sem varð til við ritgerðarvinnuna. Námið hafi jafnframt veitt honum víðari sýn sem nýtist á ólíkum starfsvettvangi.

Áhuginn skiptir máli

Andrés hvetur þau sem íhuga nám í opinberri stjórnsýslu til að láta áhugann ráða för og vera óhrædd við að spyrja spurninga.

„Velja nám sem vekur áhuga, þá verður vinnan skemmtilegri og auðveldari. Einnig að vera óhrædd við að spyrja spurninga sem lið í að dýpka þekkingu,“ segir hann og bætir við að staðnám hafi gefið honum meira en fjarnám.

Að lokinni útskrift tekur við áframhaldandi starf hjá skrifstofu Alþingis, samvera með fjölskyldunni og verkefni á heimilinu sem bíða úrlausnar.

„Njóta tímans með fjölskyldunni, áframhaldandi starf hjá skrifstofu Alþingis og vinna niður verkefnalista heimilisins. Eflaust mun ég einnig leita leiða til að afla nýrrar þekkingar.“

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil