Tíu ára afmæli meistaranáms í klínískri lyfjafræði var fagnað í Hringsal Landspítala föstudaginn 16. október. Á hátíðinni voru þrír nýir sérnámslyfjafræðingar brautskráðir og farið yfir þá þróun sem orðið hefur frá því að námið hófst árið 2016.
Námið er samstarfsverkefni Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands og Landspítala. Það var byggt upp að breskri fyrirmynd í samstarfi við University College London og Royal Pharmaceutical Society, sem nú heitir Royal College of Pharmacy. Fundarstjóri var Arnþrúður Jónsdóttir, forstöðumaður Lyfja- og næringarþjónustu Landspítala.
Fagþekking sem nýtist víða
María Heimisdóttir landlæknir ræddi mikilvægi þess að nýta fagþekkingu klínískra lyfjafræðinga víða í heilbrigðiskerfinu. Þannig megi stuðla að árangursríkri, öruggri og skynsamlegri notkun lyfja.
Björn Rúnar Lúðvíksson, framkvæmdastjóri klínískrar rannsóknar- og stoðþjónustu Landspítala, rifjaði upp heimkomu sína úr sérnámi í Bandaríkjunum. Þar hafði hann vanist því að vinna með klínískum lyfjafræðingum, og hann fann vel fyrir því að hér heima naut hann ekki sama stuðnings. Hann benti á að nú væri þjónusta klínískra lyfjafræðinga orðin órjúfanlegur hluti af starfsemi spítalans. Hann lagði jafnframt áherslu á að lyfjafræði og læknisfræði væru nátengdar greinar sem vinna saman að bættri heilbrigðisþjónustu.
Frá fámennum hópi til nýrrar fagstéttar
Freyja Jónsdóttir, kennslustjóri námsins, rifjaði upp stöðuna fyrir 2016. Klínísk lyfjafræði var þá borin uppi af fámennum hópi sem hafði menntað sig erlendis, og aðgengi að sérnámi var bæði takmarkað og kostnaðarsamt. Á sama tíma fór þörfin vaxandi með eldri sjúklingum, aukinni fjöllyfjameðferð og flóknari lyfjameðferð.
Freyja minnti á orð Kristínar Ingólfsdóttur, þáverandi rektors, þegar hugmyndin var borin undir hana: „Þetta er samfélagslega mikilvægt verkefni og því mun Háskóli Íslands taka þátt.“ Kristín var meðal gesta á hátíðinni.
Námið er 90 eininga starfstengt MS-nám sem tekur þrjú ár. Sérnámslyfjafræðingar gegna stöðum á Landspítala og fá klíníska þjálfun á fjölda deilda undir handleiðslu reyndra klínískra lyfjafræðinga. Námið hefur verið aðlagað þörfum íslensks heilbrigðiskerfis, meðal annars með þjálfun í eitrunarfræðum. Sú aðlögun hefur reynst vel, því klínískir lyfjafræðingar sinna nú eitrunarsímanum í samvinnu við lækna á bráðamóttökunni.
Klínísk lyfjaþjónusta í örum vexti
Ingibjörg Sigurðardóttir, rekstrarstjóri klínískrar lyfjaþjónustu, sýndi hvernig þjónustan hefur vaxið í takt við fjölgun útskrifaðra. Árið 2007 störfuðu fáir klínískir lyfjafræðingar á spítalanum og því aðeins hægt að veita þjónustu á fáum deildum. Í dag starfa 27 lyfjafræðingar við klíníska lyfjaþjónustu og þjónustan nær til fjölda deilda, meðal annars bráðamóttöku, gjörgæslu, Barnaspítala og nýrrar bráðamatsdeildar sem er mönnuð sjö daga vikunnar.