Már Jónsson og Gísli Pálsson

„Geirfuglabækurnar eru tvímælalaust einstök söguleg heimild, á mörkum tveggja tíma. Hugmyndir um örlög og fágæti tegunda voru í deiglunni. Það þótti alls ekki ljóst hvort dýrategundir hyrfu á vit sögunnar af mannavöldum en geirfuglabækurnar veltu hlassinu,“ segir Gísli Pálsson, prófessor emeritus í mannfræði við Háskóla Íslands. Hann ritstýrir ásamt Má Jónssyni, prófessor í sagnfræði við HÍ, bókinni John Wolley’s Garefowl Books: The Aukward Birth of Anthropogenic Extinction sem var að koma út á vegum forlagsins Pelagic Publishing í Lundúnum. Um er að ræða fyrstu heildstæðu útgáfuna á Geirfuglabókum fuglafræðingsins Johns Wolley, sem ritaðar eru á 19. öld, og verður útgáfu bókarinnar fagnað í Bóksölu stúdenta fimmtudaginn 22. október kl. 15.30.

Geirfuglabækur Johns Wolley eru handrit sem varðveitt eru á bókasafni Cambridge-háskóla og hafa að geyma frásögn af Íslandsferð fuglafræðinganna Johns Wolley og Alfreds Newton árið 1858. Ferðina má meðal annars rekja til umræðu meðal náttúrufræðinga á fyrri hluta 19. aldar um hvort geirfuglar (Alca impennis) væru enn til. „Vitað var að þeim hafði verið útrýmt við Nýfundnaland og böndin bárust að Íslandi sem vænlegum stað til leitar enda hafði geirfugli verið lýst í bókum og tímaritsgreinum. Danskir kaupmenn í Keflavík og Reykjavík höfðu um árabil útvegað erlendum náttúruminjasöfnum og söfnurum hami og egg. Enginn vissi að tegundin var útdauð og sumarið 1858 héldu bresku fuglafræðingarnir Wolley og Newton gagngert til Íslands í von um að komast til Eldeyjar út af Reykjanesi og fylgjast með geirfuglum,“ útskýrir Már.

Á öndverðum meiði við Darwin

Wolley og Newton gripu hins vegar í tómt við komuna hingað til lands enda höfðu síðustu tveir geirfuglarnir hér við land verið drepnir í Eldey 14 árum fyrr, nánar tiltekið í júní árið 1844. Vísindamennirnir ventu þá kvæði sínu í kross, höfðu uppi á áhöfninni í síðasta geirfuglaróðrinum, tólf manns, og tóku við þá ítarleg viðtöl.

„Wolley skráði ítarlega skýrslu í leiðangrinum, svonefnda Geirfuglabók eða Garefowl Books sem er varðveitt á bókasafni Cambridge-háskóla. Wolley lést árið 1859, ári eftir leiðagurinn og aðeins 36 ára gamall, en Newton varð fyrsti prófessorinn í dýrafræði við háskólann og hélt áfram starfi þeirra félaga auk þess sem hann vakti athygli á aldauða dýrategunda af mannavöldum í ótal ritum. Hann var á öðru máli en aðrir náttúrufræðingar í samtímanum, þar á meðal Charles Darwin, og taldi að aldauði geirfuglsins, sem Íslandsleiðangur þeirra Wolleys átti þátt í að staðfesta, krefðist breyttra hugmynda og nýstárlegra aðgerða í umhverfismálum. Endalok geirfuglsins væru mannanna verk,“ bendir Gísli á.

síðasti gerifuglinn
Síðasti kvenkyns geirfuglinn er varðveittur á safni í Cincinnati í Ohio í Bandaríkjunum og Gísli vitjaði hans þar.

Wolley og Newton yfirheyrðu bæði karla og konur um síðustu geirfuglana

Gísli hefur áður gert Geirfuglabókunum skil í bókinni Fuglinn sem gat ekki flogið sem kom út árið 2020 og var m.a. tilefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bókin vakti mikla athygli og hefur nú verið gefin út á þremur tungumálum: ensku, japönsku og kínversku.

Upphafið að samstarfi þeirra Gísla og Más um útgáfu bókarinnar nýju má rekja tvö ár aftur í tímann þegar Már vann að að fyrirlestri um Íslandsvininn Konrad Maurer, prófessor við Háskólann í München, sem kom til Íslands snemmsumars 1858. „Í dagbók sinni nefnir Maurer tvo enska fuglafræðinga sem voru samferða honum á skipinu og hugðust leita geirfugla. Þeim varð vel til vina og hann lagði þeim lið við að útskýra orðið geir. Ég hafði áður lesið bók Gísla og haft gaman af en las hana nú aftur. Þarna eru fuglafræðingarnir John Wolley og Alfred Newton í lykilhlutverki og athuganir þeirra, sem að mestu fólust í því að yfirheyra karla sem höfðu verið í leiðöngrum eftir geirfuglum að Geirfuglaskeri og Eldey en líka konur sem höfðu hamflett fuglana sem síðan voru seldir kaupmönnum,“ segir Már.

Þegar hann hitti svo Gísla á förnum vegi spurði hann hvort ekki stæði til að gefa textann úr Geirfuglabókunum út. Gísli vissi ekki til þess. „Ég hafði sjálfur lagt drög að textanum og var með myndir af öllu efninu. Úr varð að láta slag standa og koma þessu á prent,” segir Gísli um upphaf samstarfsins. Það var svo forlagið Pelagic Publishing í Lundúnum, sem sérhæfir sig meðal annars í útgáfu náttúrufræði- og fuglabóka, sem tók útgáfuna að sér.

Már er margreyndur af útgáfu handrita af ýmsu tagi og frá ýmsum tímum en við vinnslu bókarinnar glímdu þeir Gísli við ýmsar áskoranir. „Textinn er nánast í dagbókarformi og oftar en ekki skrifaður nokkuð hratt auk þess sem Wolley skrifaði stundum fyrst með blýanti og síðan með penna ofan í það. Fyrir vikið er textinn torráðinn á köflum en það hafðist með hægðinni að ráða fram úr öllu saman,” segir Már.

Viðraði illa til siglinga í Eldey

Geirfuglabókin er hluti af miklu skjalasafni Alfreds Newtons, þar sem mikið er af öðru efni um fuglinn. „Við ákváðum strax að afmarka okkur við ferðina 1858 og gögn sem beinlínis tengdust henni. Eiginlega er það heppilegt fyrir okkur að aldrei viðraði til siglingar út að Eldey þetta sumarið þannig að þeir félagar gátu ekki annað gert en að tala við fólk og leita að geirfuglabeinum,“ segir Gísli í léttum tón.

Már bendir enn fremur á að stafsetningu frumritsins sé haldið í bókinni nýju og skýringar settar neðanmáls þegar Wolley lagaði textann þannig að merkingin breyttist. „Handritið er í eigu háskólabókasafnins í Cambridge sem lagði nokkrar skorður við myndbirtingu þannig að við gátum ekki sýnt allar teikningar Wolleys eða mikil ættartré sem hann tók saman yfir fjölskyldur á Suðurnesjum sem hann ræddi við,“ bætir hann við.

Már Jónsson og Gísli Pálsson

Setja uppgötvanir Wolleys og Newtons í samhengi við vísindasöguna

Bók þeirra Gísla og Más geymir þó ekki aðeins handrit Geirfuglabókanna heldur ýmsar skýringar frá þeim ritstjórum og frekari upplýsingar um viðmælendur þeirra Wolleys og Newtons hér á landi, alls yfir hundrað manns á Suðurnesjum og í Reykjavík. „Sigurjón Páll Ísaksson gerir í bók sinni Úr sögu geirfuglsins á Íslandi góða grein fyrir körlunum sem voru í síðustu veiðiferðinni í júníbyrjun 1844 en allir hinir fundust í kirkjubókum og manntölum. Við þetta nutum við dyggrar aðstoðar Sigrúnar Jónsdóttur, doktorsnema í sagnfræði,“ segir Már.

Gísli bætir við að upphaflega hafi staðið til að hafa sérstakan kafla um mannskapinn sem rætt var við. „Við áttuðum okkur hins vegar fljótt á því að það yrði einum of mikið fyrir útlenda lesendur þannig að úr varð að gera góða nafnaskrá með fæðingar- og dánarárum þessa fólks og útskýra samfélagið lauslega í inngangi. Þar er annars mestu rúmi varið í dvöl þeirra félaga og gögnin sjálf, en þess líka freistað að setja uppgötvanir þeirra í samhengi við vísindasögu samtímans,“ segir Gísli sem fékk auk þess þrjá virta sérfræðinga á sviði fuglafræði, mannfræði og náttúrusögu til að skrifa stuttar greinar um athuganir sínar. „Þetta eru Petra Tjitske Kalshoven mannfræðingur og líffræðingarnir William Montevecchi og Tim Birkhead. Þar fá lesendur víðara sjónarhorn á ólíka þætti varðandi þennan heillandi og ófleyga fugl.“

Handritin aðgengileg almenningi í fyrsta sinn

Aðspurðir um hvaða erindi ríflega 150 ára gömul handrit eins og Geirfuglabækurnar eigi við samtímann undirstrikar Gísli stöðu þeirra sem einstakrar heimildar um aldauða tegundar af mannavöldum. „Fljótlega sannfærðist fólk um endalok geirfuglsins og svipuð örlög sem hugsanlega biðu annarra tegunda. Þótt verk Wolleys hafi verið mörgum kunnug og oft hafi verið vitnað til þeirra eru þau ekki aðgengileg almenningi fyrr en nú. Bækurnar veita innsýn í hugarheim veiðimanna og fræðimanna um miðja nítjándu öld, hugmyndir þeirra um aldauða eða endalok tegunda. Nú þegar allsherjar aldauði (e. mass extinction) blasir við er vert að hugsa til þess hvernig aldauðinn komst á dagskrá í kjölfar Íslandsferðar Johns Wolleys og félaga hans Alfreds Newtons,“ segir Gísli.

Aðspurðir segja þeir samstarfið um ritstjórn bókarinnar hafa gengið afar vel. „Reglulegir fundir voru haldnir á sérlega vel heppnaðri kaffistofu Bóksölu stúdenta,“ segir Már. Það er því einkar vel við hæfi að halda útgáfuboð vegna bókarinnar þar en það verður sem fyrr segir fimmtudaginn 22. október kl. 15.30. Þar munu þeir ritstjórar segja nánar frá bókinni auk þess sem hægt verður að næla sér í eintak af henni.

Nánari upplýsingar um John Wolley’s Garefowl Books: The Aukward Birth of Anthropogenic Extinction má finna á vef Pelagic-útgáfunnar.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil