Tinna Laufey Ásgeirsdóttir

Rannsóknin VAL, sem Háskóli Íslands leiðir í samstarfi við vísindafólk frá Háskólanum í Maastricht, Max Planck-stofnuninni fyrir atferlishagfræði, Háskólanum í Varsjá og Harvard-háskóla, hefur verið opnuð á val.hi.is. Rannsóknin fjallar um ákvarðanir í daglegu lífi og er opin fólki á aldrinum 18–66 ára sem býr eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu. Ólíkt hefðbundnum spurningakönnunum hafa ákvarðanir þátttakenda raunverulegar afleiðingar: sumir fá peningagreiðslu og sumum býðst að kaupa tímabilskort á lægra verði en almennt gildir.

„Margar rannsóknir á ákvörðunum byggja á því sem fólk segist myndu gera. Í VAL velur fólk í alvöru og það gerir gögnin verðmæt,“ segir Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og aðalrannsakandi VAL. „Við viljum að í rannsókninni heyrist frá fólki með ólíkan bakgrunn og reynslu.“

Enginn veit hve margir komast að

Í VAL eru raunverulegir peningar í húfi og fjármagnið er takmarkað. Fjöldi þátttakenda ræðst að miklu leyti af því hve lengi fjármagn til greiðslna endist, en hve marga það dugar fyrir veit enginn fyrir fram. Það ræðst meðal annars af tilviljun. „Þetta er óvenjuleg staða fyrir rannsakendur. Yfirleitt er ákveðið fyrir fram hve margir taka þátt. Hér vitum við það ekki fyrir víst, og það segir sína sögu um að peningarnir í VAL eru raunverulegir,“ segir Tinna.

Tímabilskortin sem kunna að bjóðast eru í Strætó, sund- og menningarkort Reykjavíkurborgar og líkamsræktarkort hjá Kötlu Fitness. Rannsóknin er styrkt af Rannsóknasjóði og unnin með stuðningi Reykjavíkurborgar, Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins (Strætó) og Kötlu Fitness. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands annast gagnaöflun.

Tilgátur kynntar þegar gagnaöflun lýkur

Rannsakendur greina ekki nánar frá tilgátum rannsóknarinnar fyrr en gagnaöflun lýkur. „Ef fólk veit fyrir fram hverju við leitum að getur það haft áhrif á valið. Það er hefðbundið verklag í atferlisrannsóknum,“ segir Tinna. „Þátttakendur fá hins vegar allar upplýsingar um það sem snýr að þeim sjálfum, um greiðslur, meðferð gagna og réttindi sín áður en þeir samþykkja þátttöku. Ekkert sem þeim er sagt er rangt.“

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og aðalrannsakandi VAL. MYND/Kristinn Ingvarsson

Um VAL

VAL er vísindarannsókn á vegum Háskóla Íslands um ákvarðanatöku í daglegu lífi, unnin í alþjóðlegu samstarfi. Aðalrannsakandi er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, sem rannsakar meðal annars heilsuhagfræði og atferlishagfræði. Nánari upplýsingar um rannsóknina, þátttökuskilyrði og persónuvernd eru á val.hi.is.

Persónuvernd og siðfræðileg rýni

Svör í rannsókninni eru vistuð undir dulkóðuðum auðkennum og rannsakendur hafa ekki aðgang að nöfnum eða kennitölum þátttakenda. Siðanefnd Háskólans í Maastricht hefur rýnt rannsóknina og gerir ekki athugasemdir við hana. Ábyrgðaraðili gagna er Háskóli Íslands.

Þátttaka í stuttu máli

Opin: Frá 15. október 2026. Lokadagur ræðst að miklu leyti af því hve lengi fjármagn til greiðslna endist.

Hver geta tekið þátt: Fólk á aldrinum 18–66 ára sem býr eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu. Lögheimili skiptir ekki máli.

Hvernig: Á netinu á val.hi.is. Innskráning með rafrænum skilríkjum.

Tími: 15 - 45 mínútur. Þátttakendur hafa 24 klukkustundir frá innskráningu til að ljúka og geta gert hlé á meðan.

Ávinningur: Sumir þátttakendur fá greiðslu, allt að 15.000 krónur. Sumum býðst að kaupa tímabilskort á lægra verði en almennt gildir. Þeir sem ljúka þátttöku geta óskað eftir persónulegri endurgjöf um eigin ákvarðanir.

Tungumál vefsins: Íslenska, enska og pólska.

VAL Logo

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil