FLIN-ráðstefna

Dagana 23.–25. september 2026 fór árleg ráðstefna norræna samstarfsnetsins FLIN (Flerspråkighet i Norden) fram á Íslandi í fyrsta sinn. Ráðstefnan bar yfirskriftina Samvinna í þágu inngildingar (Collaboration for Inclusion) og var skipulögð í samstarfi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar, með styrk frá Nordplus.

Í ráðstefnunni komu saman sérfræðingar, rannsakendur og fagfólk frá Norðurlöndunum sem starfar að menntun barna, ungmenna og fullorðinna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Megináhersla var lögð á inngildandi menntun, kennslu skólatungumálsins sem annars máls, mat á tungumálafærni og mikilvægi samstarfs þvert á stofnanir, fagstéttir og skólastig.

Dagskráin var fjölbreytt og samanstóð af fræðilegum erindum, kynningum á þróunarverkefnum, vinnustofum, skólaheimsóknum og umræðum. Þátttakendur fengu tækifæri til að kynnast íslensku menntakerfi og bera saman reynslu norrænu ríkjanna af því að skapa fjöltyngdum nemendum jöfn tækifæri til náms og virkrar þátttöku í skólasamfélaginu.

Í erindum var meðal annars fjallað um rannsókn á hæfni og kennsluháttum kennara íslensku sem annars máls, norrænan samanburð á matstækjum í annarsmálskennslu og verkefni sem stuðla að inngildingu og tungumálanámi. Kynnt voru verkefnin MEMM – Menntun, móttaka, menning, Sprettur við Háskóla Íslands, MOLF – Mál og læsi í Fellahverfi og Gefum íslensku séns!

FLIN-ráðstefna

Þátttakendur heimsóttu Vesturbæjarskóla, Hagaskóla, Austurbæjarskóla, Kvennaskólann í Reykjavík og leikskólann Miðborg, þar sem þeir kynntust starfsháttum og reynslu íslenskra skóla. Einnig var haldin vinnustofa um Íslenskuþorpið, þar sem kynntar voru leiðir til að efla íslenskunám með virkri málnotkun í daglegu lífi. Ráðstefnunni lauk með menningarferð um Reykjanes.

FLIN er norrænt samstarfsnet 20 stofnana og samtaka á sviði menntunar, fjöltyngis og inngildingar. Netið hefur starfað í rúman áratug og sameinar kennara, rannsakendur, stjórnendur og sérfræðinga frá öllum norrænu ríkjunum. Markmið þess er að efla þekkingarmiðlun, rannsóknir og þróun kennsluhátta sem styðja við námsárangur og þátttöku fjöltyngdra nemenda. Árlegar ráðstefnur netsins eru haldnar til skiptis á Norðurlöndunum.

Ráðstefnan á Íslandi skapaði mikilvægan vettvang fyrir faglega þekkingarmiðlun, ný tengsl og áframhaldandi norrænt samstarf um inngildandi menntun.

Skipuleggjendur voru Berglind Hansen, Þorbjörg Halldórsdóttir og Erla Guðrún Gísladóttir frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Renata Emilsson Pesková frá Háskóla Íslands og Dröfn Rafnsdóttir frá Reykjavíkurborg.

Nánari upplýsingar: Fjöltyngi á Norðurlöndum (FLIN)

FLIN-ráðstefna
Á ráðstefnunni voru íslensku verkefnin MEMM – Menntun, móttaka, menning, Sprettur við Háskóla Íslands, MOLF – Mál og læsi í Fellahverfi og Gefum íslensku séns! kynnt.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil