Geta ríki enn unnið að diplómatískum lausnum á tímum vaxandi spennu í heiminum? Hver er framtíð alþjóðlegra afvopnunarsamninga og friðarumleitana? Þessum spurningum og fleirum verður velt upp á hinni árlegu friðarráðstefnu The Imagine Forum á vegum Höfða - friðarseturs Reykjavíkurborgar og HÍ og samstarfsaðila. Hún fer að þessu sinni fram í Silfurbergi í Hörpu þann 12. október frá klukkan 9:30–17:00. Í ár eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjovs í Höfða sem markaði tímamót í samskiptum stórveldanna og ruddi brautina að lokum kalda stríðsins. Á ráðstefnunni munu sérfræðingar, þjóðarleiðtogar og áhrifafólk á sviði mannréttinda, friðar og alþjóðamála ræða hvaða lærdóm megi draga af leiðtogafundinum og hvernig bregðast skuli við þeim öryggisógnum sem blasa við heiminum í dag.
Meðal aðalfyrirlesara ráðstefnunnar eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóri afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Carlo Masala, prófessor og forstöðumaður Center for Intelligence and Security Studies (CISS) við Bundeswehr-háskólann í München.
Carlo Masala hefur vakið mikla athygli fyrir greiningar sínar á stríðinu í Úkraínu og er höfundur metsölubókarinnar „If Russia Wins“ sem fjallar um hugsanlega framtíð Evrópu ef Rússland næði hernaðarlegum markmiðum sínum í Úkraínu.
Fjórir leiðandi sérfræðingar á sviði kalda stríðsins, kjarnorkuöryggis og alþjóðastjórnmála taka þátt í fyrstu málstofu dagsins. Rósa Magnúsdóttir, höfundur nýrrar bókar um Höfðafundinn - Kaldastríðsborg, Sergey Radchenko, einn fremsti sagnfræðingur heims um kalda stríðið, Sharon Weiner, sérfræðingur í kjarnorkuöryggi og Thomas Blanton forstöðumaður National Security Archive ræða áhrif fundarins og þá arfleifð sem hann skilur eftir sig.