Leik- og spilagleði var allsráðandi í miðstöð nýsköpunar, Hraðinu á Stéttinni á Húsavík, á fyrsta leikjadjammi Húsavíkur var haldið helgina 19.-21. september. Að viðburðinum stóðu Háskóli Íslands, Hraðið miðstöð nýsköpunar á Húsavík, STEM Ísland og Game Makers Iceland. Fimm teymi tóku þátt en meðal þátttakenda voru allt frá grunnskólanemum til doktorsnema. Öll lærðu án efa eitthvað nýtt um leikjagerð og leikjafræði og bjuggu til leiki sem tengdust þema leikjadjammsins: Hvalir, hafið og Húsavík!
Ásta Olga Magnúsdóttir, sérfræðingur í nýsköpun og samstarfi hjá Háskóla Íslands, og Huld Hafliðadóttir, stofnandi STEM Húsavíkur og STEM Íslands, áttu frumkvæðið að viðburðinum se hann tengist norðurslóðaverkefni sem Háskóli Íslands tekur þátt í og gengur meðal annars út á að kynna leikjafræði í dreifbýli í samfélögum á norðurslóðum. Ætlunin var annars vegar að skoða hvort ungir leikjaunnendur gætu fundið sér farveg í nýsköpun leikjadamm og hins vegar hvort frumkvöðlar og skapandi fólk úr ólíkum áttum fengi nýjar og óvenjulegar hugmyndir í gegnum leikjahugsun og innsýn í leikjafræðiverkfærakistuna.