Fjölbreyttur hópur fólks kom saman á dögunum á vettvangi Háskóla Íslands til að ræða hvernig mæta megi betur væntingum sem gerðar eru til háskóla um að efla stuðning við nýsköpun og móta skýra stefnu um hvernig rannsóknir og ný þekking geti leitt til verðmætasköpunar og haft samfélagsleg áhrif. Efnt var til málþinga og funda með bæði starfsfólki skólans og stuðningsneti nýsköpunar í landinu.
Vísindi og nýsköpun eru lykilþættir í starfi háskóla og skipa jafnframt mikilvægan sess í nýrri atvinnustefnu íslenskra stjórnvalda. Örar tækni- og samfélagsbreytingar kalla á umfangsmiklar rannsóknir þvert á fræðasvið og geira svo að takast megi á við áskoranir framtíðarinnar og nýta þau tækifæri sem felast í vísinda- og rannsóknarstarfi.
Á grundvelli þessa breytta veruleika bauð Háskóli Íslands Mariu Theresu Norn, dósent við frumkvöðlasvið Tækniháskóla Danmerkur (DTU Entrepreunership) og reynslumiklum rannsakanda og sérfræðingi í stefnumótun á sviði nýsköpunar, í heimsókn í byrjun mánaðarins. Theresa fundaði með stjórnendum og nýsköpunarteymi Háskóla Íslands þar sem lagður var grunnur að endurbættri stefnu Háskóla Íslands um stuðning við rannsóknatengda nýsköpun. Sú vinna heldur áfram á næstu mánuðum.
Maria Theresa tók jafnframt þátt í opnu málþingi í Grósku föstudaginn 4. september undir yfirskriftinni „Rannsóknartengd nýsköpun sem mætir þörfum framtíðar“. Þar var fjallað um hlutverk háskóla í breyttu og síkviku umhverfi, meðal annars með tilliti til gervigreindar, rannsóknainnviða og gagnastefnu, auk uppbyggingar innviða fyrir djúptækni á Íslandi. Málþingið vvar liður í mikilvægu samtali innan háskólasamfélagsins um umgjörð rannsóknatengdrar nýsköpunar og tengsl háskóla við atvinnulíf og samfélag. Rætt var um hvers konar stuðning og samfélag þurfi að vera til staðar svo rannsóknir og nýsköpun nýtist íslensku samfélagi og stuðli að heilbrigði, velferð og sjálfbærni.
Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika, stýrði málþinginu. Maria Theresa Norn hóf dagskrána með erindi um breytt hlutverk háskóla í tengslum við nýsköpun. Hún fjallaði um hvernig væntingar til háskóla hafa þróast frá því að snúast fyrst og fremst um framúrskarandi rannsóknir yfir í að ná einnig til uppbyggingar mannauðs, stuðnings við frumkvöðlastarf, samspils ólíkra aðila innan nýsköpunarvistkerfisins og aðkomu að lausn flókinna samfélagslegra og efnahagslegra áskorana.
Kristinn R. Þórisson, prófessor við Háskólann í Reykjavík og rannsakandi við Vitvélastofnun Íslands, fjallaði um gervigreindarannsóknir og lagði áherslu á að gervigreind þyrfti áfram að vera viðfangsefni grunnrannsókna en ekki eingöngu tæki til að hraða vinnu og þróun. Eiríkur Stephensen, deildarstjóri rannsóknarinnviða við Háskóla Íslands, ræddi um stöðu rannsóknainnviða og áætlanir og árangur á sviði gagnamála og Þórey Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands, sagði meðal annars frá verkefninu Glóð (AI Antenna) og uppbyggingu þess. Þá hélt Kristján Guy Burgess frá menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðuneytinu einnig erindi þar sem hann setti umræðuna í samhengi við stefnumótun stjórnvalda.