Vísindasmiðjan, Vísindavaka

Ný tækni sem nýtir köngulóarsilki í stað nælons, félagslegir töfrar, stóri söngvabankinn, stafræn tilraunahugvísindi, lífið í sjónum, rannsóknir á fylgjunni, framlag Íslands til geimferða og hin geysvinsæla Vísindasmiðja er meðal þessa sem gestir munu finna á sýningarsvæði Háskóla Íslands á Vísindavöku laugardaginn 26. september milli kl. 12 og 17 í Laugardalshöll.

Vísindavaka er haldin ár hvert og hefur fyrir löngu unnið sér sess sem stærsti viðburður ársins á sviði vísindamiðlunar. Þar kynnir vísindafólk frá bæði háskólum, stofnunum og fyrirtækjum á Íslandi störf sín og rannsóknir og býður gestum að prófa tæki og tól eða spreyta sig á þrautum sem varpa óvenjulegu og skemmtilegu ljósi á vísindin. Vísindavaka er haldin í helstu borgum Evrópu undir heitinu Researchers' Night og hún er ætluð forvitnu fólki á öllum aldri.

Háskóli Íslands og Háskóli íslands á Hólum verða í fyrsta sinn með sameiginlegt sýningarsvæði á Vísindavöku sem spannar í kringum 40 kynningarstöðvar og tengjast ótal fræðasviðum innan skólanna.

Skyndihjálp, skurðlækningar og sebrafiskar

Gestir geta þannig fræðst um um prótínmagn í mismunandi fæðutegundum og kynnt sér hvernig fólk tekur ákvarðanir, kynnst skapandi vinnulagi félagsráðgjafa með börnum og rýnt í vetrabrautir, hulduorku og hulduefni. Þá gefst færi á að leika listir sínar með fótbolta og kynna sér langtímarannsókn á ungum knattspyrnustúlkum, spreyta sig á endurlífgun, skyndihjálp og heimlich-aðferðinni, prófa að sauma sár með hjálp nemenda í skurðlæknisfræði og fræðast um hvernig sebrafiskar eru notaðir til að rannsaka sjúkdóma í fólki.

Tungumál og hulduheimur dýranna

Þá verður einnig hægt að spreyta sig á pólsku á sýningarsvæði HÍ, kynna sér japanskt mál og menningu, prófa að skrifa kínversk tákn og smakka tunglkökur. Enn fremur gefst gestum kostur á að skyggnast inn í hulduheim maura, þreifa á krabbadýrum, krossfiskum og sjávarhryggleysingjum, skoða alvöru býflugnabú og kíkja inn í frumur ávaxtaflugunnar.

Læknar Bangsaspítalans verða á staðnum að hjúkra veikum og slösuðum böngsum og dúkkum og þá verður hægt að kynna sér hvernig foreldrar og starfsfólk leikskóla geta skimað fyrir frávikum í tal- og málþroska barna. Gestum á öllum aldri er einnig boðið í spjall um daginn og veginn fyrir framan myndavél á vegum blaðamennskunnar í HÍ og enn fremur verður hægt að setja sig í spor þjóðfræðinga og spyrja fjölskyldumeðlimi hvernig þeir léku sér sem börn.

Bangsaspítalinn
Gluggarnir í Aðalbyggingu

Hestar, höfuðlýs og röndóttar bleikjur

Fulltrúar frá Háskóla Íslands á Hólum svara spurningum um allt sem tengist hestafræði og fiskeldis- og fiskalíffræði og hjá þeim verður hægt að fara í reiðtúr í sýndarveruleika. Enn fremur fræðir starfsfólk Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum gesti á öllum aldri um hvers vegna sumar bleikjur eru röndóttar, smitleiðir höfuðlúsar í fólki og örveruflóru óhreinna handa!

Starfsfólk hinnar sívinsælu Vísindasmiðju Háskóla Íslands verður einnig á staðnum með sín skemmtilegu tæki og tól en þar verður hægt að gera tilraunir með hitamyndavél, skoða svarthol og margt fleira.

Ísjakar og kappakstursbílar

Þá geta gestir skoðað ísjaka úr Breiðamerkurjökli og ískjarnabor á vegum Jarðvísindastofnunar Háskólans, Veðurstofu Íslands og Jöklarannsóknafélag Íslands en borinn verður nýttur verður til þess að skyggnast inn í fortíðina með því að bora allt að 200 metra langan kjarna á Vatnajökli á næsta ári. Einnig geta gestir æft sig í að lesa jöklasprungukort og fylgst í rauntíma með yfirborðsbreytingum samfara framhlaupi Dyngjujökuls, sem hófst nýlega.

Nemendur í kappakstursliðinu Team Spark í HÍ sýna rafknúinn kappakstursbíl sinn, fulltrúar World Robot Olympiad, alþjóðlegrar STEM- og vélmennakeppni fyrir ungmenni, kynna keppnina, og þá verður einnig hægt að spreyta sig á stærðfræðiþrautum í nýjum tölvuleik.

Gervigreind í háskerpu

Gervigreindin verður líka áberandi á sýningarsvæði HÍ, þar sem gestir geta teiknað myndir af fiskum og furðudýrum sem lifna við í stafrænu fiskabúri með aðstoð gervigreindar, keppt við gervigreind í að greina landslag og skoðað hvaða áhrif netárásir hafa á fólk og innviði á Íslandi. Þá verður jarðskjálftavél á staðnum og segulmælar, áttavitar og segulsteinar sem varpa ljósi á segulsvið jarðar og áhrif þess á Íslandi.

Rannís hefur umsjón með Vísindavöku á Íslandi og hægt er að kynna sér dagskrá vökunnar á vef hennar.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil