Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands er í nánu samstarfi við atvinnulífið og vinnur með rúmlega 70 fyrirtækjum, ráðuneytum og stofnunum að því að veita nemendum í grunn- og meistaranámi starfsþjálfun sem opnar dyr að nýjum tækifærum á vinnumarkaði.
Í starfsþjálfun fá nemendur að:
- beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg verkefni
- vinna með reyndum stjórnendum og sérfræðingum
- byggja upp tengslanet og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði
Fyrir marga nemendur hefur starfsþjálfun reynst mikilvægt tækifæri inn í atvinnulífið. Margir fá sumarstörf eða fastráðningu að henni lokinni. Þá hafa umsagnir frá stjórnendum í atvinnulífinu oft reynst lykill að fyrstu tækifærunum í starfi.
Markmið starfsþjálfunarinnar er að tengja námið við hagnýta reynslu á sviðum eins og fjármálum, markaðsmálum, reikningshaldi og stjórnun. Þannig fá nemendur einstakt tækifæri til að læra af fagfólki og byggja brú frá námi yfir í starfsferil sinn.
Nemendur sem lokið hafa 90 ECTS í grunnnámi eða 30 ECTS í meistaranámi með fyrstu einkunn (7,25) geta sótt um starfsþjálfun á vori eða hausti.
Hver nemandi getur farið einu sinni í starfsþjálfun.
Handbók um starfsþjálfun
Í handbók um starfsþjálfun er að finna nytsamlegar upplýsingar sem nýtast nemendum í upphafi starfsþjálfunar. Handbók um starfsþjálfun.
Sendið fyrirspurnir og umsóknir: vidskipti@hi.is