Hópur frá FNV í heimsókn á Hólum vegna Erasmus verkefnis
Erasmus nemendur FNV í heimsókn að Hólum ásamt kennurum

Þriðjudaginn 15. september heimsótti hópur Erasmus-nemenda Háskóla Íslands á Hólum í samstarfi við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV). Hópurinn samanstóð af 23 nemendum og tveimur kennurum sem komu til að kynnast rannsóknum og starfsemi skólans á sviði fiskeldis og hestafræði.

Amber Monroe, Elisabeth Jansen og Eva Kuttner tóku á móti gestunum og kynntu fjölbreytt starf sem fram fer á Hólum. Nemendurnir fengu meðal annars að fræðast um rannsóknir á fiskum og skoða bleikju á mismunandi þroskastigum.

Einnig heimsótti hópurinn Sögusetur íslenska hestsins og hesthúsin á Hólum þar sem kynnt var starfsemi tengd íslenska hestinum, rannsóknir og nám í hestafræði.

Fiskur í kari á Hólum vegna Erasmus heimsóknar
Nemendur skoðuðu Bleikju

Heimsóknin var hluti af Erasmus-samstarfi FNV og gaf nemendunum tækifæri til að kynnast þeirri sérþekkingu og rannsóknaumhverfi sem byggst hefur upp á Hólum. Slíkar heimsóknir eru jafnframt mikilvægur vettvangur til að efla alþjóðleg tengsl og vekja áhuga ungs fólks á námi og rannsóknum.

Nemendur í heimsókn á Hólum. Erasmus verkefni FNV
Nemendur áhugasamir við fræðslu
Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil