Stúdentakjallarinn
Félagslíf í HÍ

Félagslíf er mikilvægur þáttur háskólanáms. Stækkaðu tengslanetið með virkri þátttöku. 

Finndu þitt áhugamál

Stúdentaráð er málsvari allra nemenda við HÍ. Ráðið fer með þau mál er varða hagsmuni nemenda gagnvart háskólayfirvöldum, stjórnvöldum og öðrum þeim sem áhrif hafa á stefnu Háskólans. Ráðið hefur aðstöðu á 3. hæð Háskólatorgs, fyrir ofan Bóksölu stúdenta.

Ráðið stendur fyrir stórum atburðum ætluðum öllum nemendum skólans. Októberfest og próflokafögnuðir eftir haust- og vormisseri eru meðal þeirra. Allar upplýsingar um starf Stúdentaráðs og fréttir af starfi þess er hægt að nálgast á vefnum student.is.

Hver deild rekur sitt nemendafélag og eru nemendur hvattir til þess að skoða hvaða nemendafélag stendur þeim næst.

Ýmis önnur hagsmunafélög eru starfrækt við HÍ. Á vef Stúdentaráðs er einnig að finna ýmsar upplýsingar og rétta tengiliði.

Í Háskóladansinum læra nemendur hressilegt Boogie Woogie, lindy hop, salsa og swingað rokk og ról og margt fleira.

Tónelskir stúdentar við Háskólann geta fundið sér eitthvað við hæfi. Við skólann eru starfræktir tveir kórar, Háskólakórinn og Kvennakór Háskóla Íslands.

Stúdentaleikhúsið á sér langa sögu og stendur alltaf fyrir sínu. Tvær sýningar á ári eru settar upp á vegum þess. Í Stúdentaleikhúsinu er alls konar fólk. Flest á það sameiginlegt að vera ofurlítið athyglissjúkir stúdentar. Eina skilyrði fyrir inngöngu í Stúdentaleikhúsið er að hafa lokið framhaldsskólaprófi.

Aðrar gagnlegar upplýsingar
Bike in the sunset
""
""

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil