- Langar þig að stýra ferðinni?
- Viltu leggja áherslu á fjölbreytni í þínu námi?
- Hefur þú áhuga á lærir að greina upplýsingar, hugsa gagnrýnið eða miðla?
- Viltu eiga möguleika á fjölbreyttum framtíðarstörfum?
Þessi aukagrein í hugvísindum er 60 eininga grunnnámsleið sem þú getur tekið samhliða 120 eininga aðalgrein í öðru fagi og lokið þannig BA-gráðu.
Um er að ræða þverfræðilegt nám þar sem þú færð að raða saman þinni námsleið úr námskeiðum sem kennd eru á Hugvísindasviði. Sjá öll námskeið sem eru í boði á grunnstigi á hugvísindasviði.
Aukagreinin er samvinna allra deilda Hugvísindasviðs.
Uppbygging náms
Í fullu námi getur þú lokið 60 einingum á einu ári.
Annað
Einnig er boðið upp á:
Meira um aðal- og aukagreinar má finna undir hjálplegt efni neðst á síðunni.
Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í reglum um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.
Nemendur hafa frjálst val námskeiða innan Hugvísindasviðs: Yfirlit námskeiða á Hugvísindasviði.
Nemendum er ekki heimilt að velja sjálfsnám eða byrjendanámskeið sem kennd eru í Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands. Einnig er óheimilt að taka einstaklings- og sérverkefni.
Nemendur sem taka námskeið í tungumálum þurfa að uppfylla kröfur þess tungumáls.
Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Fólk með menntun í hugvísindum býr yfir fjölhæfni sem nýtist á ótrúlegustu stöðum.
Meðal annars starfar fólk við:
- miðlun
- fjölmiðla
- menntamál
- menningarmál
- sjórnsýslu
- alþjóðastörf
- mannauðsmál
- tækni og nýsköpun
Listinn er ekki tæmandi
Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þessa námsleið, en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum.
Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu grunnnám
Skref fyrir skref
Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.
Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook