Hér að neðan má finna upplýsingar um inntökupróf í íslensku á stigi B2 í Evrópska tungumálarammanum (sjálfsmatsrammi CEFR). Prófin eru haldin á vegum Háskóla Íslands.
- Í prófinu er færni umsækjenda í íslensku metin á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
- Prófað er í fjórum þáttum: lesskilningi, hlustun, ritun og munnlegri færni.
- Niðurstöður prófsins verða sendar til umsækjanda með tölvupósti.
- Umsækjendur með samþykkta umsókn sem lokið hafa prófi frá erlendum skóla fá sendar nánari upplýsingar frá Háskóla Íslands um prófstað og -tíma.
- Nemendaskrá og deildir sjá um skráningu í inntökuprófið.
- Próftökugjald (sem stendur 35.000 kr.) verður innheimt frá og með desember 2026. Skráningu í próf er ekki lokið fyrr en prófgjald hefur verið greitt.
Prófin eru staðpróf og fara fram í byggingum Háskóla Íslands:
- 10. desember 2026 – Fyrir skólavist á vormisseri 2027.
- Skriflegt próf hefst kl 9, munnleg próf hefjast kl 14.
- 17. mars 2027 – Fyrir skólavist skólaárið 2027-2028.
- Skriflegt próf hefst kl 9, munnleg próf hefjast kl 14.
- 22. og 23. júní 2027 – Fyrir skólavist skólaárið 2027-2028.
- Skriflegt próf hefst kl 9 þann 22. júní.
- Munnleg próf hefjast kl 14 þann 23. júní og kl 9 þann 23. júní.
Prófgjald (sem stendur 35.000 kr.) verður innheimt og skráning í próf ekki gild fyrr en greiðsla hefur farið fram.
Gott aðgengi er að prófstöðum, próftakar fá nánari upplýsingar um prófstað og tímasetningu munnlegs prófs þegar umsókn um nám hefur verið yfirfarin.
Athugið að skólavist er ekki samþykkt fyrr en íslenskukunnátta er staðfest.
Umsækjandi þarf að mæta í prófið með gild skilríki (vegabréf eða ökuskírteini).
Frekari upplýsingar um prófaframkvæmd fást á islenskuprof@hi.is.
Prófin í lesskilningi, hlustun og ritun fara fram í rafræna prófakerfinu Inspera og taka u.þ.b. 4 klst.
- Háskóli Íslands útvegar próftökum tölvur og heyrnartól til að taka prófin. Próftakar fá rissblöð og penna. Engin önnur hjálpargögn eru leyfð í prófunum.
- Í lesskilningsprófinu eru 4 verkefni og próftakar fá 60 mínútur til að leysa prófið.
- Í hlustunarprófinu eru 4 verkefni og próftakar fá 40 mínútur til að leysa prófið.
- Í ritunarprófinu eru 2 verkefni og próftakar fá 80 mínútur til að leysa prófið.
- Stutt hlé eru gerð á milli prófanna.
- Próftakar eru hvattir til að kynna sér uppbyggingu prófanna vel með því að skoða sýnisprófin hér fyrir neðan.
Sýnispróf í lesskilningi – íslenska á B2 stigi
Sýnispróf í hlustun – íslenska á B2 stigi
Sýnispróf í ritun – íslenska á B2 stigi
Próftaka er úthlutað próftíma í munnlegt próf. Prófið tekur alls 30 mínútur.
- Fyrstu 15 mínúturnar fær próftakinn að undirbúa hluta prófsins í biðstofu áður en prófið hefst. Prófið sjálft tekur 15 mínútur í prófstofu.
- Í prófinu eru 3 verkefni sem eru afhent á staðnum.
- Próftaki tekur prófið einn og er metinn af tveimur prófdómurum.
- Próftakar eru hvattir til að kynna sér uppbyggingu prófsins vel með því að skoða sýnisprófið hér fyrir neðan.