Hafið bláa hafið
Norræna húsið
Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli Hafréttarstofnunar Íslands.
Hafáherslur í formennskum Íslands í Norðurskautsráðinu, Norrænu ráðherranefndinni og samstarfi utanríkisráðherra Norðurlands og Eystrasaltsríkja.
Dagskrá:
Kl. 10:00-10:10 Afmælisávarp - Björg Thorarensen, prófessor, stjórnarformaður Hafréttarstofnunar.
Kl. 10:10-10:30 Formennskuáætlun Norðuskautaráðsins og málefni hafsins - Einar Gunnarsson, sendiherra, formaður embættismannanefndar Norðuskautaráðsins.
Kl. 10:30-10:45 Hafið í formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og samstarf utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrarsaltsríkja - Geir Oddsson, sérfræðingur á Norðurlandadeild utanríkisráðuneytisins.
Kl. 10:45-11:00 Bláa hagkerfið - Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans.
Kl. 11:00-11:15 Aðgerðir gegn plastmengun í norðurhöfum - Magnús Jóhannesson, sérlegur ráðgjafi í norðurskautsmálum í utanríkisráðuneytinu.
Kl. 11:15-11:30 Sóknarfæri til orkuskipta í höfnum - Sigríður Ragna Sverrisdóttir, verkefnastjóri, Klappir Grænar Lausnir.
Kl. 11:30-11:45 Pólkóðinn og öryggi í siglingum á norðurslóðum - Sverrir Konráðsson, fagstjóri í siglingamálum á Samgöngustofu.
Að loknum umræðu og fyrirspurnum verður boðið upp á léttar veitingar.
Málstofustjóri: Tómas H. Heiðar, forstöðumaður Hafréttarstofnunar.
Hafið bláa hafið. Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli Hafréttarstofnunar Íslands.