Meistarafyrirlestur í tölvunarfræði - Henrý Þór Jónsson
Veröld - Hús Vigdísar
stofa 108
Meistaranemi: Henrý Þór Jónsson
Heiti verkefnis: Equilibrium: Þróun tölvuleiks í hugbúnaðarumhverfi UE4
___________________________________________
Deild: Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild
Leiðbeinandi: Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild
Prófdómari: Hörður Jóhannsson, þróunarstjóri Teledyne Gavia
Ágrip
Equilibrium er verkefni með þann tilgang að skoða hvernig er að vinna með þrautaleiki í Unreal leikjavélinni. Á þetta bæði að geta nýst sem leiðarljós fyrir aðra sem vilja feta í sömu fótspor og einnig sem stökkpallur inn í hinn villta heim tölvuleikjagerðar. Equilibrium er þróaður með innblæstri frá fornri hugmyndafræði, bæði um frumefni og blöndun þeirra sem og fullvitundar þrautaleikjum þar sem leikmenn vita um allar mögulegar aðgerðir andstæðingsins. Ritgerð þessi fjallar um framgang verkefnisins, undirbúningsfasa, gerð verkefnis og leiðir svo lesandann í gegnum hefðbundna spilun Equilibrium.