Háskólahlaupið 2019
Aðalbygging
Í skeifunni við Aðalbyggingu
Háskólahlaupið 2019 fer fram fimmtudaginn 12. september kl. 15.
Hlaupið er opið bæði starfsmönnum og stúdentum skólans og hægt verður velja á milli tveggja vegalengda, 3 km og 7 km.
Þriggja kílómetra hlaupaleiðin liggur m.a. með fram Suðurgötu, út að Reykjavíkurflugvelli og með fram friðlandinu í Vatnsmýri en sjö kílómetra leiðin í kringum Reykjavíkurflugvöll. Á lengri leiðinni verður boðið upp á tímatöku.
Skráning í Háskólahlaupið fer fram á netskraning.is og er þátttökugjald 2.500 kr. Innifalið í þátttökugjaldi er íþróttabolur merktur Háskólahlaupinu 2019.
Skráningarfrestur er til kl. 10 á hlaupadaginn sjálfan, 12. september.
Kort af hlaupaleiðum
3 km hlaupaleið
Þetta er í tólfta sinn sem Háskólahlaupið fer fram með núverandi fyrirkomulagi en það er nú í annað sinn haldið að hausti.
Háskólahlaupið 2019 fer fram fimmtudaginn 12. september kl. 15.