Reipitog nýfrjálshyggju og náttúru í Römönsku Ameríku
Hvenær
30. maí 2019 16:30 til 17:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrasalur
Nánar
Aðgangur ókeypis
Fyrirlesari: Hólmfríður Garðarsdóttir
Í fyrirlestrinum verður leitað svara við því hvers vegna umræða um umhverfismál fer ekki hátt í fjölmiðlum landa Rómönsku Ameríku. Reifaðar verða ólíkar hugmyndir íbúa álfunnar um hugtakið umhverfi og spurt hvaða áhrif það hefur á aðstæður ólíkra þjóðfélagshópa. Réttindabarátta frumbyggja og ásælni auðkýfinga og alþjóðafyrirtækja koma þar meðal annars við sögu.
Reipitog nýfrjálshyggju og náttúru í Römönsku Ameríku