Þverfaglegt framhaldsnám í umhverfis- og auðlindafræði býður upp á starfsþjálfun fyrir meistaranemendur sína í hinum ýmsu atvinnugreinum. Starfsþjálfunin er hagnýtt valnámskeið sem veitir nemendum tækifæri til að fá innsýn í starfsemi frjálsra félagasamtaka, fyrirtækja eða stofnana (skipulagsheilda) sem tengjast umhverfis- og auðlindafræði.
Starfsþjálfun er metin til 6 eininga og samsvara þriggja vikna fullu starfsnámi (120 klst alls). Hægt er að dreifa starfsnámi yfir lengri tíma, allt að einu kennslumisseri (13 vikur).
Verkefni nemanda skulu vera tvenns konar:
- Eitt veigamikið verkefni, sem að minnsta kosti helmingi starfsþjálfunar er varið í.
- Tilfallandi verkefni skipulagsheildarinnar.
Æskilegt er að nemandi kynnist sem flestum starfssviðum hennar og fái innsýn í starfsemina. Hægt er að skrá nemendur í námskeiðið hvenær sem er, líka utan hefðbundinna skráningartímabila. Ekki eru gefnar einkunnir fyrir starfsþjálfun, eingöngu staðið eða fallið.
Mögulegt er að hefja starfsþjálfun með tveimur leiðum:
- Skipulagsheildir auglýsa eftir starfsnemum í tiltekin starfsþjálfunarverkefni.
- Nemendur hafa frumkvæði að starfsþjálfunarverkefni eða spyrjast fyrir um starfsþjálfunarverkefni (í samráði við starfsfólk námsleiðarinnar) hjá tiltekinni skipulagsheild og þróa verkefnið í samstarfi.
Þegar stöður eru auglýstar skulu nemendur senda umsóknir sínar til umhverfi@hi.is með heiti starfsþjálfunarstöðu sem sótt er um í titli. Gefa skal til kynna á hvaða tímabili nemandi sækist eftir að vera í starfsþjálfun.
Umsókninni skal fylgja:
- Kynningarbréf að hámarki 500 orð sem inniheldur:
- Stutta útskýringu á áhuga nemandans á tiltekinni starfsþjálfun.
- Stutta útskýringu á hæfni og reynslu nemandans sem gæti nýst í starfsþjálfuninni.
- Ferilskrá með fyrri menntun og starfsreynslu.
Nemendur eru hvattir til að hafa frumkvæði að starfsþjálfun í samráði við starfsfólk námsleiðarinnar. Vinsamlegast hafið samband við verkefnisstjóra í umhverfi@hi.is.
Eftirfarandi skipulagsheildir eru í formlegu samstarfi við námsleiðina og bjóða reglulega upp á starfsþjálfunarstöður.
- Landsvirkjun
- Advania
- Orkuveita Reykjavíkur (OR) og dótturfélög þess ON, Carbfix og Veitur