tannlæknaþjónusta
Tannlæknaþjónusta fyrir almenning hjá Tannlæknadeild Háskóla Íslands

Tannlæknadeild Háskóla Íslands býður upp á tannlæknaþjónustu fyrir almenning. Þjónustan er í boði á meðan kennsla við deildina fer fram, frá miðjum ágúst og út nóvember og frá byrjun janúar fram í miðjan apríl.

Meginmarkmið kennslu við Tannlæknadeild er að mennta tannlækna. Stór hluti af námi þeirra er meðhöndlun sjúklinga. Tannlæknanemar læra að veita sjúklingum meðferð af margvíslegum toga, til dæmis tannhreinsun, rótfyllingu, tannfyllingu og tanngervi.

Tannlæknanemar veita meðferð undir eftirliti kennara sinna á verklegum kennslustofum deildarinnar á 2. hæð í Læknagarði við Vatnsmýrarveg 16.

tannlæknaþjónusta
Nánari upplýsingar

Ef þú hefur áhuga á að koma í meðferð hjá nemendum Tannlæknadeildar Háskóla Íslands þarftu að byrja á því að bóka tíma í skoðun og greiningu. Þar er greint hvaða meðferð þú hefur þörf á og hvort meðferðin henti nemendum deildarinnar. Ef svo er ekki þarftu að leita til tannlæknastofu. Bóka þarf tíma til þess að koma í þennan fyrsta skoðunar- og greiningartíma.

Ekki þarf að panta tíma í skoðun og greiningu fyrir börn (sautján ára og yngri). Til þess að fá tíma fyrir þau í skoðun og meðferð þarf að skrá þau í síma 525-4850.

Ekkert gjald er tekið fyrir meðferð barna vegna samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

Tannlæknanemar á 4., 5. og 6. ári veita tannlæknaþjónustuna undir eftirliti tannlækna (klínískra kennara). Þjónustan tekur alla jafna lengri tíma en á venjulegri tannlæknastofu.

Tannlæknaþjónustan er veitt þegar kennsla fer fram við deildina, frá miðjum ágúst og út nóvember og frá byrjun janúar fram í miðjan apríl.

Það er mismunandi verð fyrir meðferðirnar.

Tannlæknaneminn framkvæmir skoðun og greiningu og ákveður í samráði við kennara hvaða meðferð er þörf á. Ef tannlæknaneminn getur tekið að sér að veita meðferð er hægt að óska eftir kostnaðaráætlun.

Því miður er ekki alltaf hægt að veita sjúklingum þá meðferð sem þeir þurfa og eru þeir þá hvattir til þess að sækja þjónustu á tannlæknastofu.

Greiða þarf fyrir hvern tíma nema um stærri verkefni sé að ræða og að sérstaklega sé um það samið.

Sími: 525-4850
Netfang: klinik@hi.is

Tímapantanir eru í síma milli kl. 9:00-11:30 og 13:00-16:00 virka daga á kennslutímabilinu, frá miðjum ágúst og út nóvember og frá byrjun janúar fram í miðjan apríl. Áminning um tímann er send með SMS skilaboðum daginn áður.

Ef þú getur ekki mætt í tíma láttu þá vita eins fljótt og hægt er. Það skiptir nemandann miklu máli að getað notað þann tíma sem hann hefur í verknámi og þarf því að hafa svigrúm til þess að boða annan sjúkling.

Ef ekki er mætt í tíma og hann ekki afboðaður ítrekað getur nemandi ekki bókað annan tíma vegna framvindu námsins.

Því miður er ekki boðið upp á neyðarþjónustu og bráðameðferðir við Tannlæknadeild Háskóla Íslands.

Í neyðartilvikum skaltu hafa samband við tannlækninn þinn eða neyðarvakt Tannlæknafélagsins.

Tannlæknaþjónusta Tannlæknadeildar Háskóla Íslands er í Læknagarði (stundum kallað Tanngarður) við Vatnsmýrarveg 16, 101 Reykjavík (sjá á korti).

Læknagarður er stóra ljósa húsið austur af BSÍ. Tannlæknaþjónustan er á hæðinni sem gengið er inn á, önnur hurð til vinstri. Við hlökkum til að taka á móti ykkur!

Hafðu samband
Tannlæknaþjónusta
Eftir samkomulagi
Heilbrigðisvísindasvið

Deildarforseti
Bjarni Elvar Pétursson, prófessor

Læknagarðar

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil