Erasmus+ er menntaáætlun Evrópusambandsins og gerir akademísku starfsfólki og starfsfólki í stjórnsýslu HÍ kleift að sækja um styrki til gestakennslu eða starfsþjálfunar/heimsókna í þátttökulöndum Erasmus+.
Umsóknarfrestur fyrir vor og sumar 2027 er 15. nóvember 2026.
Umsóknum fyrir ferðir á þessum tímabilum er aðeins svarað eftir umsóknarfrest. Umsóknir sem berast fyrir frest fá forgang. Tekið er við umsóknum eftir umsóknarfresti sem er þá svarað jafn óðum, en styrkjum er þá einungis úthlutað ef nægt fjármagn er til. Æskilegt er að umsóknir berist til Alþjóðasviðs minnst 8 vikum fyrir áætlaða brottför og umsóknum sem berast innan 4 vikna frá áætlaðri brottför verður synjað.