Hefur þú áhuga á íslenskum miðaldabókmenntum, íslenskum bókmenntum síðari alda og íslenskum nútímabókmenntum? Vilt fá þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum og rannsóknum? Langar þig að auka þekkingu þína og skilning á aðferðum og fræðikenningum sem beitt er við bókmenntarannsóknir?
Langar þig að öðlast kennsluréttindi? Getur þú séð fyrir þér að kenna íslensku í grunn- eða framhaldsskóla? Vilt þú öðlast þekkingu á almennri kennslufræði og góða þekkingu á kennslufræði íslensku?
Langar þig í þverfræðilegt nám sem tengist hinum ýmsum greinum raunvísindanna? Vilt þú öðlast víðtæka þekkingu og skilning á viðfangsefnum iðnaðarlíftækni? Getur þú hugsað þér að sérhæfa þig á sviði líftækni?
Langar þig að öðlast skilning á nýjustu þekkingu innan iðnaðarverkfræði? Vilt þú öðlast yfirgripsmikla þekkingu á framleiðslu-, gæða- og vörustjórnun í fyrirtækjum, tilhögun nýsköpunar og vöruþróunar? Hefur þú áhuga á rekstri og stjórnun fyrirtækja ásamt fjármálastjórnun þeirra?
Viltu verða kennari? Hefur þú áhuga á að kenna íþróttir? Finnst þér gaman að hreyfa þig?
Hefur þú áhuga á að efla heilsu annarra? Finnst þér gaman að hreyfa þig? Viltu starfa við íþróttir og heilsutengd mál?
Langar þig að dýpka þekkingu þína á ákveðnu sviði jarðeðlisfræðinnar? Hefur þú áhuga á jarðfræði Íslands? Vilt þú auka sérhæfingu þína í berg-, jökla- eða jarðskjálftafræði?