Hefur þú áhuga á samfélaginu og náttúru? Vilt þú taka þátt í að byggja upp atvinnulíf og samféleg á sjálfbæran og ábyrgan hátt? Vilt þú fá tækifæri til þess að læra af og vinna með öflugum vísindamönnum og sérfræðingum á sviði ferðamála?
Vilt þú fara í nám sem lýkur án meistararitgerðar? Hefur þú trausta undistöðuþekkingu úr fjármálum eða samsvarandi kunnáttu? Langar þig í nám sem er góður undirbúningur fyrir fjölbreytt störf á fjármálamarkaði?
Vilt þú fara í sveigjanlegt nám með fáum skyldunámskeiðum? Hefur þú trausta undistöðuþekkingu úr fjármálum eða samsvarandi kunnáttu? Getur þú hugsað þér nám sem er kennt í lotum og því einungis lögð áhersla á tvö námskeið í einu hverju sinni?
Hefur þú góðan grunn í stærðfræði og tölfræði? Vilt þú fara í hagnýtt nám? Sérðu fyrir þér að starfa á fjármálamarkaði?
Hefur þú áhuga á samskiptum foreldra og barna? Hefur þú áhuga á að styðja foreldra og gera þau enn hæfari í foreldrahlutverkinu? Getur þú borið virðingu fyrir því að margbreytileiki fjölskyldna er mikill og aðstæður og þarfir eru oft ólíkar?
Eru mannréttindi þér hugleikin? Langar þig til að skilja hvernig fötlun birtist í menningu, sögu og daglegu lífi? Viltu efla félagslegan, menningarlegan og pólitískan skilning á fötlun?
Hefur þú áhuga á franskri sögu og bókmenntum? Langar þig að auka skilning þinn á margslungnum tengslum tungumála og menningar? Vilt þú fá þjálfun í tjáningu á frönsku og læra að beita mismunandi orðræðu í mæltu og rituðu máli?