Háskóli Íslands býður nýnema velkomna með sérstökum nýnemadögum á haustin. Næst verða nýnemadagar haldnir 31. ágúst - 4. september 2026. Allir nýnemar og aðrir stúdentar eru hvattir til að taka þátt í dagskránni. Þar er boðið upp á skemmtilega viðburði og fræðslu um lífið og þjónustuna sem veitt er í Háskólanum. Dagskrá nýnemadaga fer að mestu fram á Háskólatorgi.
Upplýsingaborð fyrir nýnema verður opið í nýnemavikunni frá kl. 10 - 14 á Háskólatorgi.
Fulltrúar frá Stúdentaráði standa fyrir svörum á upplýsingaborðinu. Þar má fá svör við hinum ýmsu spurningum er varða námið, skólann, húsnæði, félagslíf, þjónustu og margt fleira.
Við hvetjum nýnema líka til að horfa þetta myndband þar sem farið er yfir allar helstu upplýsingar sem gott er að hafa á hreinu þegar þú hefur nám í Háskóla Íslands.
Það er tilvalið að óska eftir aðgangi að Facebook-síðu fyrir alla nýnema Háskólans sem er óháð námsleiðum og fræðasviðum og opin öllum sem eru að hefja nám við skólann. Á síðunni geta nýir nemendur leitað upplýsinga hver hjá öðrum og átt í óformlegum samskiptum á jafningjagrundvelli.
Endilega fylgstu með Instagram-reikningi Háskólans þar sem kynnt er ýmis þjónusta, stuðningur og félagslíf sem stendur nemendum til boða.