lífvísindi
Ýmis tækifæri fyrir doktorsnema

Doktorsnemum við HÍ standa til boða ýmis tækifæri á vegum Erasmus+, menntaáætlunar Evrópusambandsins. Þeir geta sótt um Erasmus+ styrki til fjölbreyttrar náms- og starfsþróunar innan þátttökulanda Erasmus+. Í boði er skiptinám, rannsóknarvinna, starfsþjálfun, stutt námskeið, ráðstefnuþátttaka og starfsþjálfun eftir brautskráningu.

Hér að neðan má finna yfirlit yfir helstu tækifæri, skilyrði og styrkupphæðir.

  • Í skiptinámi taka nemendur námskeið til ECTS eininga við einn af samstarfsskólum HÍ og fá einingarnar metnar.
  • Aðeins er hægt að sækja um skiptinám í skóla þar sem HÍ er nú þegar með samstarfssamning á doktorsstigi.
  • Miðað er við að nemendur séu í fullu námi (30 ECTS) á hverju misseri, en hægt er að vera í skiptinámi í eitt eða tvö misseri.
  • Nemendur fylgja leiðbeiningum um umsóknir um skiptinám

  • Doktorsnemar geta sótt um styrk til að stunda rannsóknir sem tengjast þeirra lokaverkefni hjá háskólum, fyrirtækjum eða stofnunum.
  • Ekki þarf að vera samstarfssamningur á milli HÍ og móttökustofnunar, en ef heimsækja á háskóla þá verður háskólinn að vera með Erasmus+ vottun.
  • Rannsóknarvinna getur bæði verið til lengri tíma (2-12 mánuðir) eða styttri dvöl (5-30 dagar).
  • Nemendur fylgja leiðbeiningum um umsóknir um starfsþjálfunarstyrk.

  • Doktorsnemar geta farið í hefðbundna starfsþjálfun hjá fyrirtækjum, stofnunum eða háskólum þar sem hægt er að öðlast verðmæta reynslu fyrir atvinnulífið.
  • Hefðbundin starfsþjálfun getur verið til lengri tíma (2-12 mánuðir) eða styttri dvöl (5-30 dagar)
  • Nemendur fylgja leiðbeiningum um umsóknir um starfsþjálfunarstyrk.

  • Doktorsnemar geta sótt styttri námskeið við samstarfsskóla HÍ. Aðeins er hægt að sækja um Erasmus+ styrk fyrir námskeiði við skóla þar sem HÍ er nú þegar með samstarfssamning.
  • Stutt námskeið eru 5-30 dagar í staðnámi erlendis.
  • Hægt er að sækja blönduð námskeið sem eru einnig með rafrænan hluta.
  • Ef námskeiðið er blandað hraðnámskeið (Blended Intensive Programme – BIP) er skylda að doktorsnemar ljúki bæði rafrænum hluta námskeiðsins og staðlotu.
  • Nemendur fylgja leiðbeiningum um umsóknir um stök námskeið.

  • Doktorsnemar geta sótt um Erasmus+ styrk vegna þátttöku á ráðstefnum.
  • Þegar sótt er um styrk fyrir ráðstefnu þá verður nemandi að vera virkur þátttakandi með erindi eða veggspjald, og móttökustofnunin verður að vera tilbúin að taka á móti nemandanum, skrifa undir starfsþjálfunarsamning, og styðja við dvöl nemanda eins og tekið er fram í starfsþjálfunarsamningi sem er undirritaður af nemanda, HÍ og móttökuaðila.
  • Dvölin verður að vera að lágmarki 5 dagar.
  • Nemendur fylgja leiðbeiningum um umsóknir um stutta starfsþjálfun.

  • Doktorsnemar geta brúað bilið á milli náms og starfs og sótt um að fara í Erasmus+ starfsþjálfun við háskóla, fyrirtæki, eða stofnanir eftir útskrift.
  • Nemendur verða að sækja um a.m.k tveimur mánuðum fyrir útskrift.
  • Nemendur geta að hámarki fengið styrk fyrir 6 mánuði og verða að byrja og ljúka dvöl innan 6 mánaða frá útskrift.
  • Dvölin getur verið til lengri tíma (2-6 mánuðir) eða styttri dvöl (5-30 dagar)
  • Nemendur fylgja leiðbeiningum um umsóknir um starfsþjálfunarstyrk.

Doktorsnemar geta fengið Erasmus+ styrk í allt að 12 mánuði (360 daga) á námstímanum. Hægt er að sækja um styrk oftar en einu sinni. Fyrir styttri dvöl (5-30 daga) geta doktorsnemar þó aðeins fengið styrk einu sinni á hverju misseri, og að hámarki 5 sinnum á námstímanum.

Styrkupphæðir

Upphæð styrkja fer eftir áfangastað og lengd dvalar. Upphæðir geta verið breytilegar eftir skólaárum.

  • Ferðastyrkur er 309-1188 evrur
  • Styrkur fyrir styttri dvalir (5-30 dagar) er 79 evrur á dag fyrstu 14 dagana, síðan 56 evrur á dag
  • Styrkur fyrir lengri dvalir (2-12 mánuðir) er 550-606€ á mánuði í skiptinámi og 700-756 €  á mánuði í starfsþjálfun
  • Nemendur geta einnig sótt um Erasmus+ inngildingarstyrki. Ef nemendur mæta viðmiðum Landskrifstofu Erasmus+ vegna færri tækifæra geta þeir t.d. sótt um viðbótarstyrk sem nemur 250 evrum á mánuði, eða 100/150 evrum fyrir styttri dvalir.
  • Hægt er að sækja um viðbótarferðastyrk til Alþjóðasviðs ef sýnt þykir að ferðastyrkur nægi ekki fyrir 70% af ferðakostnaði, miðað við hagkvæmasta ferðamátann.
  • Sýni þátttakandi fram á að aðalferðamáti ferðarinnar hafi verið vistvænn (miðað við fjölda kílómetra) er veittur hærri ferðastyrkur, frá 56-1735€.

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil