Nemendur við Háskólabrú Keilis
Háskólabrú Keilis

Háskólabrú Keilis gefur þeim sem ekki hafa lokið stúdentsprófi færi á að hefja háskólanám. Háskóli Íslands ber faglega ábyrgð á náminu en Keilir sér alfarið um framkvæmd kennslu í samræmi við námskrá og kröfur háskólans.

Námið er í boði hjá Keili á Ásbrú sem er eini skólinn sem býður upp á slíkt aðfaranám í samstarfi við Háskóla Íslands. Námið er hægt að stunda í fjarnámi og staðnámi, ýmist í fullu námi eða samhliða vinnu, allt eftir því hvaða fyrirkomulag hentar hverjum og einum.

Deildir Háskólabrúar samsvara deildum háskólans en boðið er upp á félagsvísinda- og lagadeild, hugvísindadeild, viðskipta- og hagfræðideild ásamt verk- og raunvísindadeild. Námið gildir til inntöku í allar deildir Háskóla Íslands að uppfylltum kröfum deildanna.

Inntökuskilyrði í aðfaranám Keilis eru þau að umsækjendur séu orðnir 20 ára og hafi lokið ákveðnum fjölda eininga í framhaldsskóla eða skilgreindu starfsnámi.

Háskólabrú Keilis varð hluti af Háskóla Íslands frá og með 1. janúar 2026 en starfsemi hennar verður áfram á Ásbrú á Suðurnesjum.

Viltu vita meira?
Keilir

Hvað segja nemendur um Háskólabrú Keilis?

Keilir - efnafræði

Kynntu þér Háskólabrú Keilis nánar

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil