Skip to main content

Laus störf

Lektor í guðfræðilegri siðfræði

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í guðfræðilegri siðfræði við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Doktorsnemi við verkefnið Himnuferli til að endurheimta verðmæta málma úr jarðhitavatni

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands. Starfið er styrkt af Rannsóknasjóði Rannís til þriggja ára vegna verkefnisins Himnuferli til að endurheimta verðmæta málma úr jarðhitavatni.

Doktorsnemi í jarðfræði

Laust er til umsóknar tímabundið til þriggja ára, 70-75% starf doktorsnema í jarðfræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands við verkefnið ICE-MELT: Þróun kviku og tímasetning eldgosa á Langjökli á nútíma: Tengsl jökulhopunar og eldvirkni.Markmið verkefnisins er að rannsaka tengsl jökulhopunar og eldvirkni í Langjökli með þverfaglegri nálgun sem felur í sér fornsegulmælingar, bergfræði og eðlisræna eldfjallafræði. Doktorsneminn sem valinn verður mun taka virkan þátt í öllum þáttum verkefnisins: vettvangsvinnu, sýnatöku, jarðefna- og bergfræðigreiningu, fornsegulmælingum til aldursgreiningar, gagnavinnslu og -greiningu og ritun vísindagreina. Fyrirhugaðar rannsóknir fela í sér sýnatökuferðir og jarðfræðikortlagningu við Prestahnúk og Hveravelli í nágrenni Langjökuls. Sérstök áhersla er lögð á þverfaglega nálgun sem sameinar jarðefnafræði, fornsegulmælingar og eðlisræna eldfjallafræði, sem gefur doktorsnemanum tækifæri til að læra fjölbreyttar aðferðir við að meta dýpi kvikuhólfa, aldur eldgosa og eðli gosvirkni meðan á verkefninu stendur. Rannsóknin mun auka þekkingu okkar á því hvernig afjöklun hefur áhrif á eldstöðvakerfi, sem er mikilvægt fyrir mat á eldgosahættu á Íslandi og öðrum jökulþöktum eldvirkum svæðum.Verkefnisstjóri og leiðbeinendur verða dr. Elisa Piispa, dr. Alberto Caracciolo og dr. Rosie Cole.

Lektor í rafmagns- og tölvuverkfræði

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í rafmagns- og tölvuverkfræði við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir (40%), kennslu (48%) og stjórnun (12%).

Lektor í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði við námsbraut í tölvunarfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun. 

Lektor í kennslu leiklistar

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í kennslu leiklistar við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni lektorsins verða kennsla og rannsóknir á sviði leiklistar og leiklistarkennslu, í kennaramenntun fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Einnig er þess er vænst að viðkomandi taki virkan þátt í þróun kennaramenntunar og fjölbreyttra kennsluhátta á háskólastiginu.

Lektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stærðfræði og stærðfræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni lektorsins verða kennsla, rannsóknir og þróunarstarf á sviði stærðfræði og á sviði stærðfræðimenntunar. Starfið tilheyrir Deild faggreinakennslu en tilvonandi lektor mun einnig koma að kennslu í öðrum deildum sviðsins. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun. 

Doktorsnemi í Horizon Europe og THCS Verkefni - Straumlínustjórnun í heilbrigðiskerfi

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við iðnaðarverkfræðideild Háskóla Íslands. Starfið er til þriggja ára og er hluti af þverfaglegu verkefni, MUSCLE, þar sem doktorsneminn mun læra og þróa færni í beitingu straumlínustjórnunar, ferlagreiningar og gagnaúrvinnslu innan heilbrigðiskerfisins (e. Lean Healthcare). Verkefnið MUSCLE er styrkt af Horizon Europe - THCS Partnership og markáætlun (#THCS2025-361). Markmið verkefnisins er að umbreyta meðferðarferlum við stoðkerfissjúkdóma með því að beita Lean Healthcare - aðferðum til að draga úr sóun, einfalda verkferla og efla sjúklingamiðaða þjónustu sem og bæta nýtingu heilbrigðisauðlinda.Doktorsneminn mun starfa með rannsakendum MUSCLE-verkefnisins sem koma frá Háskóla Íslands, íslenska heilbrigðiskerfinu, Háskólanum í Skövde (Svíþjóð), sænska heilbrigðiskerfinu, Háskólanum í Mondragón (Spáni), spænska heilbrigðiskerfinu og Heilbrigðisráðuneyti Möltu. Íslenski hluti verkefnisins felur í sér ferlagreiningu og úrvinnslu heilbrigðisgagna sem styðja markmið MUSCLE, auk kortlagningu stafrænna lausna. Starfið felur í sér heimsóknir til samstarfsaðila í Svíþjóð, Spáni og Möltu.