Að vinna í HÍ

Háskóli Íslands er einn stærsti vinnustaður landsins. Auk rúmlega 15 þúsund nemenda starfa þar rúmlega sextán hundruð fastráðnir starfsmenn og yfir tvö þúsund stundakennarar og lausráðnir starfsmenn.

Meginhlutverk Háskólans er að vera vísindaleg rannsókna- og fræðslustofnun. Til þess að svo megi vera þarf starfsfólk með ólíka menntun og bakgrunn.

Markmið Háskóla Íslands er að vera í fremstu röð háskóla og að nota alþjóðlega viðurkennda mælikvarða við allt gæðamat á starfi skólans. Gerðar eru kröfur til kennara, stjórnenda og annars starfsfólks til að ná þessu markmiði.

Í könnunum sem gerðar hafa verið um starfsumhverfi Háskóla Íslands kemur í ljós að starfsánægja er mikil, starfsandi góður og starfsfólk telur sig vera í góðri aðstöðu til að þróast í starfi.

Laus störf

Öll störf við skólann eru auglýst í samræmi við reglur um auglýsingaskyldu. Undantekningin er þó þegar háskólanemar starfa á grundvelli rannsóknarstyrks.

Smelltu á fyrirsögn við viðkomandi starf til að komast á umsóknarsíðu. Ef engin fyrirsögn birtist hér fyrir neðan eru engin laus störf í boði.

Sótt er um störf í gegnum Ráðningarkerfi ríkisins. Notendur þurfa að skrá sig inn með kennitölu og lykilorði eða með rafrænum skilríkjum.

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu

Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í rannsóknaþjónustu við Raunvísindastofnun við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið felst í því að leiða og styðja við undirbúnings- og umsóknarferli (e. Pre-Award) alþjóðlegra rannsóknastyrkja á sviði raunvísinda, náttúruvísinda og verkfræði. Sérfræðingurinn mun starfa náið með rannsakendum og alþjóðlegum rannsóknahópum að þróun og framsetningu samkeppnishæfra styrkumsókna.

Starfssvið

  • Ráðgjöf, þróun, skipulag og ritun styrkumsókna (e. Grant Writer) einkum til evrópskra samkeppnissjóða á borð við Horizon Europe
  • Stuðningur og ráðgjöf við rannsakendur og alþjóðlega rannsóknahópa við að móta rannsóknahugmyndir og miðla vísindalegu nýnæmi á skýran hátt
  • Aðstoð við hönnun og ritun vinnupakka og verkefnaáætlana
  • Greining tækifæra í styrkjaumhverfi raunvísinda, náttúruvísinda og verkfræði og ráðgjöf um samræmingu þeirra við stefnu og áherslur stofnunarinnar
  • Stuðningur við uppbyggingu alþjóðlegs rannsóknasamstarfs og tengsla við erlenda samstarfsaðila 
  • Skipulagning og umsjón námskeiða, vinnustofa og fræðslufunda um gerð styrkumsókna

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf á sviði raunvísinda, náttúruvísinda, verkfræði eða tengdra greina, doktorspróf er kostur
  • Góð akademísk innsýn og hæfni til að setja sig inn í vísindaleg viðfangsefni
  • Gagnrýnin og greinandi hugsun og hæfni til að móta og miðla vísindalegum viðfangsefnum
  • Reynsla úr háskóla- og rannsóknaumhverfi og góður skilningur á starfsháttum, hugtakasmíð og þörfum rannsakenda er kostur
  • Reynsla af undirbúningi, ritun, mótun og rýni stórra alþjóðlegum rannsóknastyrkjum er kostur
  • Reynsla af regluverki, matsviðmiðum og umsóknarferlum evrópskra styrkja, þar á meðal EU Funding & Tenders Portal er kostur
  • Reynsla af samstarfi við fjölbreytta, alþjóðlega rannsóknahópa er kostur
  • Reynsla af námskeiðahaldi, ráðgjöf og leiðbeiningu til sérfræðinga er kostur
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð enskukunnátta, í ræðu og ritun fræðilegs texta 
  • Íslenskukunnátta í ræðu og riti, er kostur
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og þjónustulund 

Umsóknarferli

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn: 

  • Ferilskrá
  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins 
  • Afrit af prófskírteinum 
  • Upplýsingar um umsagnaraðila 

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests. 

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands. 

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi. 

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar. 

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir 

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Kristmundsdóttir

hildurk@hi.is

Sækja um

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil