Nemendur á alþjóðadögum á Háskólatorgi
Inngilding í íslensku háskólasamfélagi

Til þess að stuðla að fjölgun innflytjenda í háskólanámi hafa opinberu háskólarnir á Íslandi ýtt af stað samstarfsverkefni um inngildingu í íslensku háskólasamfélagi, sem unnið er með styrk frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.

Með tilkomu fjölmenningarsamfélags og breyttri samfélagsgerð á Íslandi er mikilvægt að menntastofnanir komi til móts við og þróist samhliða fjölbreyttum þörfum samfélagsins. Jöfn tækifæri til menntunar og þjálfunar eru nauðsynlegur grundvöllur árangursríkrar þátttöku í samfélaginu og stuðlar einnig að uppbyggingu á inngildandi samfélagi. Eins og staðan er í dag fara innflytjendur síður í háskólanám en önnur ungmenni og þurfa að takast á við fleiri áskoranir. Við þessu vilja opinberu háskólarnir bregðast.

Í samstarfsverkefninu voru þróaðar leiðir ætlaðar til að stuðla að aukinni inngildingu í háskólasamfélaginu, fjölga innflytjendum í háskólanámi og sporna við brottfalli þeirra. Það var m.a. gert með útfærslu stuðningsúrræða, þjónustu og ráðgjafar auk þess sem þróuð var inngildingarstefna, mótttökuáætlun og undirbúningur hafinn við fræðslu og þjálfun starfsfólks.

Joanna Marcinkowska, sérfræðingur í fjölmenningu og inngildingu, stýrði verkefninu. Hún er með aðstöðu í Háskóla Íslands sem leiddi verkefnið.

Starf stýrihóps leiddi Arnar Gíslason frá Háskóla Íslands.

Í hópnum sátu:

  • Marta Einarsdóttir, Háskólinn á Akureyri
  • Gunnhildur Guðbrandsdóttir, Landbúnaðarháskóli Íslands
  • Laufey Haraldsdóttir, Háskóli Íslands á Hólum
  • Juan Camilo Roman Estrada
  • Sveinn Guðmundsson, Háskóli Íslands
Tengdar fréttir
Skýrslur

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil