Stofnun

Háskóli Íslands var stofnaður 17. júní árið 1911, á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta og fyrstu 29 árin var hann til húsa í Alþingishúsinu við Austurvöll. Við stofnun Háskóla Íslands voru Prestaskólinn, Læknaskólinn og Lagaskólinn sameinaðir og mynduðu hver sína deild skólans, auk þess sem heimspekideild var bætt við.

Háskólaárið 1911-1912 voru nemendur einungis 45 og þar af ein kona, en starfsárið 2013-2014 stunduðu tæplega fjórtán þúsund nemendur nám við Háskóla Íslands, um tveir þriðju hlutar þeirra konur. Við Háskólann er boðið upp á mikinn fjölda námsleiða á grunn-, meistara- og doktorsstigi.

Árið 1940 flutti Háskóli Íslands í Aðalbyggingu við Suðurgötu. Húsakostur skólans hefur vaxið mikið síðan og er nýjasta byggingin Saga, sem tekin var í notkun 2025.

Hinn 1. júlí 2008 tók gildi nýtt skipulag og stjórnkerfi Háskóla Íslands og á sama tíma sameinaðist skólinn Kennaraháskóla Íslands á aldarafmæli síðarnefnda skólans. Hinn nýi Háskóli Íslands skipast í fimm fræðasvið sem hvert um sig skiptist í nokkrar deildir. Fræðasviðin eru:

  • Félagsvísindasvið
  • Heilbrigðisvísindasvið
  • Hugvísindasvið
  • Menntavísindasvið
  • Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Auk þess er við skólann starfræktur fjöldi rannsókna- og þjónustustofnana.

Rektor Háskóla Íslands er Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild.

Ýmislegt hefur verið skrifað og gefið út um sögu háskólans í gegnum tíðina.

Árbók háskólans

Árbók Háskóla Íslands hefur verið gefin út allt frá stofnun skólans.

Í Árbókinni er að finna helstu upplýsingar um starfsemi skólans. Á tímaritavef Landsbókasafnsins, timarit.is, er að finna árbækur HÍ frá upphafi. Unnið er að því að koma árbókum síðustu ára inn í safnið.

Yfirlit um hálfrar aldar starf

Á 50 ára afmæli háskólans árið 1961 var samið og gefið út ritið Saga Háskóla Íslands: Yfirlit um hálfrar aldar starf. Unnt er að leita að atriðisorðum í þessari skrá. Höfundur ritsins er Guðni Jónsson prófessor.

Háskóli Íslands 75 ára

Í tilefni af 75 ára afmæli skólans árið 1986 var gerð heimildarmynd um sögu og starfsemi háskólans.

Hægt er að horfa á myndina á YouTube.

Húsnæðis- og byggingarsaga

Heimildaritið Úr húsnæðis- og byggingarsögu Háskóla Íslands var gefið út í tilefni af 75 ára afmæli Háskóla Íslands árið 1986. Ritið kom út í tveimur bindum. Fyrra bindið kom út árið 1986 og hið síðara árið 1991.

Páll Sigurðsson tók saman.

Aldarsaga Háskóla Íslands

Stórvirkið Aldarsaga Háskóla Íslands 1911-2011, var gefið út í tilefni af aldarafmæli skólans. Um er að ræða mjög umfangsmikið og vandað rit, tæplega 900 blaðsíður að lengd og skreytt rúmlega 300 myndum af margvíslegu tagi. Höfundar ritsins eru Guðmundur Hálfdánarson, Sigríður Matthíasdóttir og Magnús Guðmundsson. Ritstjórn þess var í höndum Gunnars Karlssonar.

Aldarafmælisvefur

Á aldarafmæli háskólans árið 2011 var opnaður vefur tileinkaður aldarafmælinu. Á honum er gefið yfirlit yfir sögu skólans í máli og myndum.

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil