""
Upplýsingar um inntökuprófið

Umsækjendur um Íslensku sem annað mál, hagnýtt nám, þurfa að standast inntökupróf í íslensku. Hér að neðan má finna upplýsingar um lágmarkskröfur, tímasetningu, gerð prófs og annað sem tengist inntökuprófinu.

Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám er námsleið fyrir nemendur með grunnfærni í íslensku, samsvarandi stigi A1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Í inntökuprófi reynir á færni sambærilega þeirri sem þjálfuð er í námsefninu Íslenska fyrir alla 1-2 og Icelandic Online Survival.

Engar undanþágur eru gerðar frá inntökuprófi.

No exemptions are granted from the admission test.

Dagsetningar og staðsetning prófa

Netpróf - inntökuprófið fyrir fer fram á netinu. Prófið er tiltækt í sólarhring. Það opnar klukkan 12:00 (GMT) þann 10. mars og lokar klukkan 12:00 (GMT) þann 11. mars.

Umsækjendur geta þreytt prófið hvenær sem er innan þessara tímamarka. Þeir hafa 90 mínútur til að leysa prófið.

Umsækjendur sem taka netpróf prófinu þurfa einnig að taka munnlegt próf í íslensku á netinu hjá prófdómara, 11. og 12. mars. Þetta er gert til þess að staðfesta að umsækjandi hafi tekið inntökuprófið sjálfur og án hjálpargagna. Nemendur fá bókunarmöguleika í munnlega prófið sendan þegar þeir eru samþykktir í inntökuprófið.

Umsækjendur verða aðeins samþykktir í Íslensku sem annað mál, hagnýtt nám ef þeir ná bæði inntökuprófinu og munnlega prófinu.

Staðpróf á íslandi - inntökuprófið fer fram við Háskóla Íslands þann 10. mars klukkan12.

Prófið er eingöngu skriflegt, ekkert munnlegt próf. Umsækjendur sem geta ekki tekið prófið í Háskóla Íslands verða að taka það á viðurkenndum prófstað á Íslandi. Hér má finna lista yfir viðurkennda prófstaði.

Upplýsingar um skráningu í fjarpróf koma síðar.

Að hámarki 50 umsækjendur með ríkisfang frá ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) verða teknir inn í námið. Undanþegnir takmörkuninni eru ríkisborgarar Sviss, Grænlands og Færeyja, auk þeirra sem hafa ótímabundið dvalarleyfi eða dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur að ótímabundnu dvalarleyfi hér á landi.

Inntökuprófið er staðpróf og fer fram þann 15. júní klukkan 9:00 í Háskóla Íslands.

Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði námsins verða sjálfkrafa skráðir í prófið og fá frekari upplýsingar um prófið þegar umsóknin hefur verið yfirfarin.

Umsækjendur sem geta ekki tekið prófið í Háskóla Íslands verða að taka það á viðurkenndum prófstöðum á Íslandi.

Upplýsingar um skráningu í fjarpróf koma síðar.

Athugið: Umsækjandi þarf að mæta í prófið með gild skilríki (vegabréf eða ökuskírteini).

Nánari upplýsingar

Skriflegt próf:

Skriflega inntökuprófið er í fjórum hlutum: lestur, hlustun, orðaforði og málfræði. Það er tekið í rafræna prófakerfinu Inspera. Umsækjendur fá einnota notandanafn og lykilorð til að hafa aðgang að prófinu.

Munnlegt próf:

Munnlega inntökuprófið er aðeins fyrir þá sem staðist hafa skriflegt inntökupróf á netinu þann 10. mars.

Próftökugjald er 15.000 kr. Greiðslan fer fram í gegnum umsóknargátt eftir að umsækjendur hafa verið samþykktir í próf.

Hafðu samband

Umsækjendur geta sent póst á netfangið icelandic@hi.is fyrir nánari upplýsingar.

 

Skylt efni

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil