Nemendur sitja við borð
Upplýsingar um inntökuprófið

Umsækjendur um BA-nám í íslensku sem öðru máli og Íslenskustoð við Háskóla Íslands þurfa að standast inntökupróf í íslensku. Hér að neðan getur þú fundið upplýsingar um lágmarkskröfur, tímasetningu, gerð prófs og annað sem tengist inntökuprófinu.

BA-nám í íslensku sem öðru máli og Íslenskustoð eru námsleiðir fyrir nemendur með góðan grunn í íslensku, samsvarandi stigi A2+ í Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Í inntökuprófi reynir á færni sambærilega þeirri sem þjálfuð er í íslenskunámskeiðum 1-5 hjá framhaldsfræðsluaðilum eins og t.d. Mími. Til að undirbúa sig fyrir prófið geta nemendur til dæmis skoðað Icelandic Online Survival og Icelandic Online 1 og 2 eða bækurnar Íslenska fyrir alla.

Dagsetningar og staðsetning prófa

Dagsetningar og staðsetning prófa.

Inntökupróf fyrir umsækjendur sem sækja um nám fyrir 1. febrúar

Netpróf - inntökuprófið fyrir fer fram á netinu. Prófið er tiltækt í sólarhring. Það opnar klukkan 12:00 (GMT) þann 10. mars og lokar klukkan 12:00 (GMT) þann 11. mars.

Umsækjendur geta þreytt prófið hvenær sem er innan þessara tímamarka. Þeir hafa 90 mínútur til að leysa prófið. Umsækjendur sem taka netpróf prófinu þurfa einnig að taka munnlegt próf í íslensku á netinu hjá prófdómara, 11. og 12. mars. Þetta er gert til þess að staðfesta að umsækjandi hafi tekið inntökuprófið sjálfur og án hjálpargagna. Nemendur fá bókunarmöguleika í munnlega prófið sendan þegar þeir eru samþykktir í inntökuprófið.

Umsækjendur verða aðeins samþykktir í BA-nám eða Íslenskustoð ef þeir ná bæði inntökuprófinu og munnlega prófinu.

Staðpróf á íslandi - inntökuprófið fer fram við Háskóla Íslands þann 10. mars kl.12. Prófið er eingögn skriflegt, ekkert munnlegt próf. Umsækjendur sem geta ekki tekið prófið í Háskóla Íslands verða að taka það á viðurkenndum prófstað á Íslandi. Hér má finna lista yfir viðurkennda prófstaði.

Upplýsingar um skráningu í fjarpróf koma síðar.

Inntökuprófið fyrir umsækjendur sem sækja um nám fyrir 20. maí

Inntökuprófið er staðpróf og fer fram þann 15. júní klukkan 9:00 í Háskóla Íslands.

Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði námsins verða sjálfkrafa skráðir í prófið og fá frekari upplýsingar um prófið þegar umsóknin hefur verið yfirfarin.

Umsækjendur sem geta ekki tekið prófið í Háskóla Íslands verða að taka það á viðurkenndum prófstöðum á Íslandi. Hér má finna lista yfir viðurkennda prófstaði á Íslandi.

Athugið: Umsækjandi þarf að mæta í prófið með gild skilríki (vegabréf eða ökuskírteini).

Nánari upplýsingar

Inntökuprófið er í fjórum hlutum: lestur, hlustun, orðaforði og málfræði.

Sýnispróf má finna hér:

Ef umsækjandi telur að sýnisprófið sé of erfitt þá er best að breyta umsókinni og sækja í staðinn um hagnýtt nám í íslensku sem öðru máli .

Inntökuprófið verður tekið í rafræna prófakerfinu Inspera. Umsækjendur fá einnota notandanafn og lykilorð til að hafa aðgang að prófinu, líka þau sem eru nú þegar nemendur HÍ.

Engin hjálpargögn eru leyfð í inntökuprófinu.

Ef umsækjandi nær ekki inntökuprófinu má hafa samband við Nemendaskrá (admission@hi.is) eða senda skilaboð í gegnum Samskiptagáttina til að óska eftir því að skipta yfir í námsleiðina Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám. Ath: Skráning í Íslensku sem annað mál, hagnýtt nám gerir kröfu um að umsækjandi sýni fram á kunnáttu sína í ensku, með TOEFL-prófi (a.m.k. 79), IELTS-prófi (a.m.k. 6.5), eða PTE Academic (a.m.k. 58). Aðrar leiðir til að uppfylla kröfur um enskukunnáttu má finna hér.

Próftökugjald er 15.000 kr. Greiðslan fer fram í gegnum umsóknargátt eftir að umsækjendur hafa verið samþykktir í próf.

Nemendur sem hafa lokið grunndiplómu í Hagnýtu námi í íslensku sem öðru máli með fyrstu einkunn (7,25) eru undanþegnir inntökuprófi.

Hafðu samband

Umsækjendur geta sent póst á netfangið icelandic@hi.is fyrir nánari upplýsingar.

Skylt efni

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil