""
Lífeðlisfræðistofnun

Megin hlutverk Lífeðlisfræðistofnunar Háskóla Íslands (sjá reglur nr. 543/2010) er tvíþætt.

  • Annars vegar rannsóknir í lífeðlisfræði
  • Hins vegar að veita aðstöðu til verklegrar kennslu í lífeðlisfræði

Stofnunin veitir öllum fastráðnum kennurum og sérfræðingum HÍ í lífeðlisfræði rannsóknaraðstöðu. Einnig getur stjórn stofnunarinnar veitt vísindamönnum á öðrum fræðasviðum aðstöðu eftir því sem aðstæður leyfa og efni standa til.

Á stofnuninni er unnið að undirstöðurannsóknum á sviðum lífeðlisfræðinnar. Með þessum rannsóknum er aflað nýrrar þekkingar sem kemur að notum við lausn á ýmsum viðfangsefnum, bæði fræðilegum og hagnýtum.

Starfsmenn stofnunarinnar annast alla kennslu í lífeðlisfræði við HÍ og leggur stofnunin til aðstöðu og tækjabúnað til verklegrar kennslu.

Að auki hefur stofnunin tekið að sér að annast kennslu í lífeðlisfræðinámskeiðum þeirra námsleiða við HÍ sem ekki hafa fastráðinn kennara í greininni. Þannig hefur tekist að halda nær allri starfsemi á sviði lífeðlisfræði innan Háskólans á einum stað.

Auk þess annast stofnunin kennslu í tveimur námskeiðum í lífeðlisfræði innan heilbrigðisverkfræði samkvæmt samningi við Háskólann í Reykjavík.

Forstöðumaður: Sveinn Hákon Harðarson, dósent

LÆK117G Læknisfræðileg eðlisfræði (læknisfræði, 1. ár haust)
LÆK223G Frumulífeðlisfræði (læknisfræði, 1. ár vor)
LÆK313G Lífeðlisfræði A (læknisfræði, 2. ár haust)
LÆK409G Lífeðlisfræði B (læknisfræði, 2. ár heilsárs)
LÆK212G Lífeðlisfræði I TN (næringarfræði og tannlæknisfræði, 2. ár haust)
LÆK213G Lífeðlisfræði II TN (næringarfræði og tannlæknisfræði, 2. ár vor)

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil