35. háskólaþing Háskóla Íslands

haldið 19. nóvember 2025

Dagskrá

Setning háskólaþings

Kl. 13.00-13.05 Rektor setur þingið og fer yfir dagskrá og tímaáætlun (5 mín.).

Dagskrárliður 1

Kl. 13.05-13.20 Rektor reifar mál sem eru efst á baugi hjá Háskóla Íslands (15 mín.).

Dagskrárliður 2

Kl. 13.20-14.10 Rökræðupallborð – (Háskóla)borgarapanell (50 mín.).

Málsmeðferð:

  1. Aðferðafræði og skipulag – Jón Ólafsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild (10 mín.)
  2. Fulltrúar rökræðuhópsins fylgja áliti hans úr hlaði – Rósa Signý Gísladóttir, dósent við Íslensku- og menningardeild, og Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild (10 mín.).
  3. Umræður (30 mín.).

Kl. 14.10-14.20 Kaffihlé (10 mín.).

Dagskrárliður 2 (frh.)

Kl. 14.20-15.15

  1. Umræður (40 mín.).
  2. Niðurstöður (15 mín.)

Kl. 15.15 Rektor slítur háskólaþingi.

Kl. 13.00-13.05

Setning háskólaþings

Rektor setti háskólaþing og bauð þingfulltrúa velkomna. Greindi hann frá því að þetta væri 35. háskólaþing Háskóla Íslands, en fyrsta háskólaþing, sem þá hét háskólafundur, var haldið 4.-5. nóvember 1999 og var viðfangsefni þess að móta sameiginlega vísinda- og menntastefnu fyrir Háskóla Íslands. Haldnir voru 25 háskólafundir, en árið 2008 var nafninu breytt í „háskólaþing“ og er þetta, eins og áður sagði, 35. þingið, eða ef allt er talið hið 60.

Háskólaþing er haldið í samræmi við lög um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglur um skipan og fundarsköp háskólaþings nr. 984/2008 með síðari breytingum. Háskólaþing er samráðsvettvangur háskólasamfélagsins þar sem fram fer umræða um þróun og eflingu Háskóla Íslands. Þingið fjallar um og tekur þátt í að móta sameiginlega stefnu Háskóla Íslands að frumkvæði rektors. Háskólaráð getur leitað umsagnar háskólaþings um hvaðeina sem varðar starfsemi Háskóla Íslands og ráðið getur einnig falið þinginu umfjöllun um fagleg málefni og akademíska stefnumörkun. Háskólaþing er ályktunarbært um þau málefni sem það telur að varði hag háskólasamfélagsins.

Á háskólaþingi eiga fast sæti rektor, forsetar fræðasviða, deildarforsetar og kjörnir fulltrúar fræðasviða, fulltrúar helstu stofnana Háskóla Íslands og samstarfsstofnana hans, kennarafélaga og stúdenta auk fulltrúa starfsmanna stjórnsýslu og fulltrúa úr háskólaráði. Tæplega 100 manns sitja háskólaþing að þessu sinni.

Fundargerð síðasta háskólaþings, sem haldið var 20. nóvember 2024, var send þingfulltrúum. Engar athugasemdir bárust við fundargerðina og skoðast hún því samþykkt.

Rektor fól Magnús Diðrik Baldurssyni, skrifstofustjóra rektorsskrifstofu, að vera fundarritari.

Kl. 13.05-13.20

Dagskrárliður 1

Rektor reifar mál sem eru efst á baugi hjá Háskóla Íslands

Kl. 13.20-14.10

Dagskrárliður 2

Rökræðupallborð – (Háskóla)borgarapanell

Rektor greindi frá því að meginviðfangsefni þessa háskólaþing væri umfjöllun um skyldur háskóla á átakatímum. Bakgrunnur málsins væri m.a. innrás Rússa í Úkraínu og hernaðarátök fyrir botni Miðjarðarhafs. Sagðist rektor sjálf hafa lýst því yfir í innsentningarávarpi sínu í sumar að hún teldi mikilvægt að fordæma menntamorð og að háskólar ættu að standa saman þegar að þeim væri sótt, hvort heldur sem er með orðum, lögum eða vopnum. Til þess að hefja samtal um málið hafi hún falið Jóni Ólafssyni, prófessor við Íslensku- og menningardeild, að undirbúa það sem kallað er rökræðupallborð og bauð hún Jóni að taka orðið og greina frá aðferðafræði og skipulagi rökræðupallborðsins.

Sagði Jón að á síðustu 10-20 árum hafi víða komið fram aukinn áhugi á nýjungum í lýðræði og að þróa og útfæra fleiri leiðir en hefðbundnar kosningar til að leiða fólk saman til að móta stefnu til framtíðar eða taka ákvarðanir. Sem dæmi um slíka viðleitni mætti nefna þjóðfundina sem haldnir voru á árunum 2009-2010. Lífleg umræða væri innan stjórnmálaheimspeki samtímans um málefnið og jafnvel spurt, hvort æskilegt væri að byggja lýðræðið á öðru en kosningum. Þótt vitaskuld væru skiptar skoðanir um þessi mál mætti segja að með tímanum hafi mótast viss aðferðafræði í kringum slembivalda rökræðuhópa sem á ensku kallast "mini publics" eða "deliberative mini publics".

Nokkrar tilraunir hefðu verið gerðar með þetta form á Íslandi og væri í því sambandi skemmst að minnast þjóðfundanna svokölluðu á árunum 2009-2010 sem að margra mati hefðu gefið góða raun. Rétt væri þó að hafa hugfast að rökræðupallborðið sem hér væri til umræðu væri af öðrum toga.

Markmið rökræðupallborðsins var ekki að kalla saman fólk til þess að safna hugmyndum heldur hefði verið slembivalinn hópur starfsfólks sem fékk það verkefni að rökræða valdar spurningar í góðu tómi. Ekki hefði beinlínis verið ætlunin að komast að niðurstöðum, heldur frekar að leiða í ljós mismunandi sjónarmið og áherslur. Gildi þessarar tilraunar hafi því fyrst og fremst verið að leitast við að draga fram helstu sjónarmið í þeim stóru málum sem lögð voru til grundvallar. Í gögnum þingsins væri að finna ítarlegri lýsingu á ferlinu.

Varðandi slembivalið á þátttakendum komu nokkrar leiðir til álita, s.s. að láta þáttakendur endurspegla sem best þann hóp sem þeir tilheyra, en þess í stað var ákveðið að einfalda slembivalið og treysta því að þau sem veldust í hópinn myndu virða ákveðnar grunnforsendur rökræðunnar með því að leggja sig fram um að hlusta á hina, setja viðhorf sín fram með heiðarlegum og ítarlegum hætti o.s.frv.

Markmiðið með rökræðupallborðinu var ekki að reyna að fá fram einhvers konar heildarmynd af þeim viðhorfum sem eru í háskólasamfélaginu til ástandsins á Gaza og tengdra atburða, heldur fyrst og fremst að fá saman hóp af fólki sem væri tilbúið til þess að leggja sig fram um að draga fram þau sjónarmið sem máli skipta og skýra að einhverju marki forsendur þeirra. Áherslan væri m.ö.o. ekki á strangvísindalega nálgun, heldur meira á rökræðuna og einlæga og heiðarlega þátttöku.

Spyrja mætti, til hvers væri farið út í svona æfingu? Til að svara því þyrfti að hafa í huga að rökræðuhópar af þessu tagi geta aldrei komið fyllilega í staðinn fyrir heðfðbundin stjórnmál og ekki heldur í staðinn fyrir aktívisma eða bara almennar umræður alls staðar í samfélaginu.

Engu að síður getur rökræðupallborðið gegnt mikilvægu hlutverki við að brúa bilið á milli þess sem er að gerast úti í samfélaginu, hvort sem það er háskólasamfélagið eða samfélagið í heild annars vegar og því sem stjórnsýslan eða stjórnmálin þurfa að takast á við hverju sinni hins vegar. Rökræðan feli í sér ákveðna nálgun og í því tilviki sem hér um ræðir væri fyrst og fremst verið að biðja þátttakendur um að spyrja sig þeirrar spurningar almennt, hvaða kröfur eða hvaða skyldur það leggi íslensku háskólasamfélagi á herðar að það sé uppi tiltekið pólitískt ástand, alþjóðlegt ástand í heiminum.

Ekki væri verið að biðja þátttakendur um að móta sér fasta skoðun á því sem er að gerast á Gaza heldur væri spurningin, hvort og með hvaða hætti Háskóli Íslands ætti taka tillit til atburðanna á Gaza í sinni starfsemi. Á skólinn að taka tillit til þess eða gerir hann það nú þegar? Og hvað þýðir það að háskóli taki með einhverjum hætti tillit til slíkra atburða í starfsemi sinni?

Það var m.ö.o. ekki verið að reyna að fá einhvern hóp háskólafólks til að taka afstöðu á hinum pólitíska vettvangi eða krefjast þess að háskólinn gerði það, heldur að spyrja þessarar óumflýjanlegu spurningar: Hvaða þýðingu hafa atburðirnir í Gaza fyrir íslenskt háskólasamfélag?

Í því sambandi væri nærtækt að vísa til samanburðar við innrásarstríð Rússa í Úkraínu, enda væri ljóst að flestir teldu það skipta máli að Háskóli Íslands tæki afstöðu til þeirra atburða. Raunar þótti það svo sjálfsagt mál að það var varla rætt í einhverjum almennum krítískum skilningi.

Að einhverju leyti virtist þó gegna öðru máli varðandi atburðina í Gaza og rökræðupallborðið væri góð aðferð til að skapa ríkan jarðveg fyrir frekari umræðu.

Að endingu þakkaði Jón rektor fyrir að hafa haft frumkvæði að þessari lýðræðistilraun og varpaði hann því fram til umhugsunar hvort etv. mætti yfirfæra aðferðafræði rökræðupallborðsins yfir á háskólaþing þannig að fulltrúar á þinginu yrðu slembivaldir í stað þess að vera kjörnir.

Að lokinni framsögu Jóns tóku tveir fulltrúar rökræðuhópsins til máls, þau Rósa Signý Gísladóttir, dósent við Íslensku- og menningardeild, og Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild.

Að kynningum loknum gaf rektor orðið laust.

Kjörinn fulltrúi Félagsvísindasviðs þakkaði fyrir vandaða og mikilvæga vinnu og sagði að í ályktunartillögu rökræðuhópsins væri blandað saman hugmyndum um það sem Háskóli Íslands sem stofnun gæti gert og hins vegar vangaveltum um mögulega hvatningu til starfsfólks. Auk þess væri tillagan mjög opin og almenn og ekki fjallað sérstaklega um ísraelskt fræðafólk eða fræðafólk sem starfar við íslenska háskóla. Starfsfólk Háskóla Íslands stæði því frammi fyrir því að geta ekki vitað um raunverulega afstöðu fólks til þjóðarmorðsins í Gaza.

Rektor svaraði og benti á að ekkert hefði verið ákveðið. Fyrir þinginu lægju drög rökræðuhópsins að ályktun og það væri þingsins að ákveða hvort það vildi taka hana upp.

Forseti Hugvísindasviðs þakkaði fyrir góða undirbúningsvinnu og sagði viðfangsefni þingsins bæði þarft og brýnt. Margir veltu því fyrir sér hvers vegna Háskóli Íslands væri ekki nú þegar búinn að fordæma árásir Ísraels á saklausa borgara í Palestínu, ekki síst í ljósi þess að skólinn tók skýra afstöðu varðandi innrás Rússlands í Úkraínu. Vissulega væri nú útlit fyrir að átökunum væri að linna, en Háskóli Íslands ætti samt að móta sér almenna stefnu um svona hluti og það sé í raun ekki sérstaklega pólitísk afstaða að lýsa yfir stuðningi við ofbeldi gegn saklausum borgurum hvar sem er í heiminum. Einnig væri brýnt að ræða hvað Háskóli Íslands gæti gert strax til að hjálpa nauðstöddum á Gaza, s.s. að bjóða háskólafólki frá Palestínu að koma hingað til lands. Loks tók forsetinn undir með kjörnum fulltrúa Félagsvísindasviðs um að ályktunartillaga rökræðupallborðsins væri svolítið óljós.

Kjörinn fulltrúi Hugvísindasviðs tók undir með forseta sviðsins og sagðist fagna því að fá tækifæri til að taka þátt í umræðum um svo mikilvægt málefni. Þá beindi fulltrúinn þeirri spurningu til Jóns Ólafssonar hvernig slembivalið í rökræðuhópinn hefði farið fram.

Jón Ólafsson sagði að við val á þátttakendum í rökræðupallborðinu hefði starfsfólki verið skipt í nokkra hópa, fastráðna og lausráðna (stundakennara o.s.frv.), auk þess sem nemendur hefðu tekið þátt. Eins og áður sagði fylgdi val þátttakenda ekki strangvísindalegum aðferðum, en lögð hefði verið áhersla á að þeir hlustuðu á önnur sjónarmið, færðu rök fyrir máli sínu, tækju rökum annarra o.s.frv.

Deildarforseti Sálfræðideildar sagði að hvað svo sem verði gert sé mikilvægt að gera sér grein fyrir því hverju það eigi að skila. Ef t.d. verði ákveðið að sniðganga ísraelska háskóla verði að liggja fyrir hvort það sé til þess að setja þrýsting á ísraelsk stjórnvöld. Einnig sé vert að hugleiða hverju það eigi að skila ef einstakir starfsmenn sniðgangi aðra einstaklinga út af þeirra skoðunum, þ.e. ef tilgangurinn sé að mótmæla stefnu stjórnvalda og stofnana. Að lokum tók fulltrúinn undir með fyrri ræðumönnum um að mikilvægt sé að aðskilja afstöðu stofnana annars vegar og einstaklinga hins vegar.

Fulltrúi jafnréttisnefnar háskólaráðs sagði það vera til fyrirmyndar að efna til þessa lýðræðislega rökræðuferlis og að það kæmi til móts við kröfu háskólasamfélagsins, bæði kennara og nemenda. Sagðist fulltrúinn sjálfur verið áhugamaður um svona tilbrigði við lýðræðið, m.a. með því að draga úr vægi hefðbundinna kosninga og efla lýðræðið með virkri þáttöku borgaranna. Háskólaþing væri í eðli sínu mikilvæg stofnun og því hvíldi sérstök ábyrgð á þingfulltrúum að taka a.m.k. skref áfram í því máli sem lægi fyrir þinginu og heimurinn allur hefði staðið frammi fyrir í ríflega tvö ár. Í þessu sambandi bæri einnig að hafa í huga að Háskóli Íslands væri ekki bara einhver skóli heldur æðsta menntastofnun landsins og hefði hann því ákveðnu forystuhlutverki að gegna. Sagðist fulltrúinn vona að háskólaþing gæti komið sér saman um tillögu um áþreifanleg næstu skref.

Kjörinn fulltrúi Heilbrigðisvísindasviðs spurði, hvort fyrir liggi hver séu stofnanatengsl Háskóla Íslands og háskóla í Ísrael – og þar með, hvað væri mögulega verið að sniðganga og hvað afleiðingar það gæti haft. Fyrir lægi að Ísland væri í margvíslegum viðskiptalegum tengslum við Ísrael, s.s. í tengslum við greiðslumiðlunarfyrirtæki, og því kæmi einnig til álita að þrýsta á innlend stjórnvöld um að gera breytingar þar á. Innrás Rússlands í Úkraínu og innrás Ísraels í Palestínu sýndi að háskólasamfélagið þurfi að vera viðbúið því að þetta ástand haldi áfram.

Rektor sagði að engin stofnanaleg tengsl væru á milli Háskóla Íslands og ísraelskra háskóla, en Ísrael væri vissulega aðili að rannsóknainnviðum og styrkjaáætlunum Evrópu. Á vettvangi evrópskra háskóla hafi margt verið rætt í þessu sambandi en ekki væri komin niðurstaða í það mál enn sem komið er.

Deildarforseti Íslensku- og menningadeildar greindi frá því að deildin hefði sl. vor samþykkt með leynilegri kosningu ályktun um að sniðganga beri öll tengsl við ísraelska háskóla. Þá sagði forsetinn frá því að honum hefði verið boðið að taka þátt í ráðstefnu á Bretlandi árið 2022 og þegar hann mætti á vettvang hafi komið í ljós að meiri hluti ráðstefnugesta var frá Ísrael, flestir ósköp venjulegir fræðimenn, sumir starfandi í Evrópu og aðrir í Bandaríkjunum. Á þessum tíma árið 2022 vissi enginn hvað var í vændum, en svo breyttist allt og á endanum var af siðferðilegum ástæðum ekki stætt á öðru en að draga fræðilegt framlag sitt til baka.

Rektor sagði frá ályktun háskólans í Genf þar sem m.a. segir að háskólinn leitist við að tryggja gegnsæi í sínum samstarfssamningum við erlenda háskóla og styrkveitendur. Í ályktuninni er í þessu sambandi talað um ‚etchical and deontological control‘ sem má þýða sem ‚skyldusiðferði‘, þ.e. siðferðilega afstöðu sem ræðst af grunngildum og siðferðilegum skyldum en ekki útkomunni hverju sinni.

Kjörinn fulltrúi háskólasamfélagsins í háskólaráði lýsti ánægju með að þetta mikilvæga mál skuli vera á dagskrá háskólaþings og þakkaði fyrir góða og málefnalega umræðu. Sagði hún að sér væru efst í huga hagsmunir barnanna sem þjáðust vegna ástandsins á Gaza og þeirrar mannréttindaskerðingar sem þau verði fyrir. Þau hefðu ekki haft tækifæri til að stunda nám í langan tíma og jafnvel þótt stríðinu myndi ljúka á næstunni myndi það taka áratugi að byggja samfélagið upp aftur. Hvað verður um þessi börn, hvað verður um velferð stríðshrjáða fólksins á Gaza og hvaða áhrif munu þessir atburðir hafa á heiminn?

Kl. 14.10-14.20

Kaffihlé

Kl. 14.20-15.15

Dagskrárliður 2 (frh.)

Eftir kaffihlé var umræðunni haldið áfram og kvaddi forseti Félagsvísindasviðs sér hljóðs og bar saman viðbrögðin við innrásarstríði Rússlands í Úkraínu annars vegar og umræðuna vegna hernaðar Ísraels á Gaza hins vegar. Sagði hann að í fyrra tilvikinu hefði Háskóli Íslands fylgt stefnu Samtaka evrópskra háskóla (EUA) að máli og sett upp ákveðið ferli innan skólans, en í síðara tilvikinu virtist umræðan m.a. hafa sprottið upp í kjölfar áskorana einstakra deilda og snúast um annars konar ferli. EUA fordæmdi árás Rússa harðlega, vék rússneskum háskólum sem tóku afstöðu með stjórnvöldum í landinu úr samtökunum og lýsti yfir samstöðu með nemendum og starfsfólki úkraínskra háskóla. Íslenskir háskólar tóku undir þessa afstöðu og innan Háskóla Íslands var sett á laggirnar sérstakt verkefni um málefni úkraínskra flóttamanna. Ekkert slíkt hefur verið gert varðandi flóttamenn frá Palestínu. Áhugavert væri að bera saman þessi ferli og ræða hvernig ferlið í svona málum ætti að vera almennt.

Deildarforseti Mála- og menningardeildar ræddi samanburð þessara mála við afstöðu eða afstöðuleysi háskóla varðandi átök í öðrum og fjarlægari heimshlutum, s.s. í Suður-Afríku. Greindi hann m.a. frá þingi sem hann sótti fyrir mörgum árum þar sem mikið uppnám varð vegna þátttöku fræðimanns frá Suður-Afríku, en íslensku þátttakendurnir höfðu enga stefnu til að styðjast við andstætt fulltrúum hinna Norðurlandanna.

Formaður öryggisnefndar Háskóla Íslands varpaði fram þeirri spurningu, hvort skólinn væri bundinn af utanríkisstefnu íslenskra stjórnvalda varðandi atburðina á Gaza og hversu mikið frelsi Háskóli Íslands sem opinber háskóli hefði t.d. til að beita ísraelska háskóla þvingunaraðgerðum. Þótt í tilviki innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu hefði íslenska ríkið sniðgengið Rússland samhliða stefnu EUA, hefði komið fram í kynningu Rósu Signýjar og Karls að þau hefðu aflað álits frá lögfræðingi sem teldi sniðgöngu rúmast innan heimilda Háskóla Íslands, en skólinn hefði hins vegar hvorki umboð né getu til að beita sér fyrir eiginlegum refsiaðgerðum.

Aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika spurði hvert hefði verið umfang sniðgöngunnar í tilviki Rússlands, þ.e. hvort hún hefði aðeins beinst að háskólastofnunum eða verið víðtækari. Í tilviki innrásar Rússa í Úkraínu á sínum tíma hefði ekki verið gerður skýr greinarmunur á sniðgöngu stofnana og einstaklinga, þótt vissulega hefði málið snúist um tengsl einstaklinganna við stofnanirnar. Á þessum tíma hefði m.a. verið algeng skoðun að sniðganga ekki einstaklinga sem lýstu yfir andstöðu við afstöðu stofnananna sem þeir störfuðu við, en það væri hæpið þar sem viðkomandi einstaklingar gátu verið að setja sig í hættu með slíkri yfirlýstri afstöðu.

Fulltrúi í háskólaráði tilnefndur af ráðinu spurði hvort fyrir lægju upplýsingar um það hvort einhverjir evrópskir háskólar hefðu ákveðið að sniðganga ísraelska háskóla með þeim hætti sem hér hefði verið rætt um.

Bent var á að þótt upplýsingar um þessi mál hefðu ekki verið teknar saman af hálfu Háskóla Íslands væru til listar yfir þá háskóla sem hefðu lýst yfir sniðgöngu. Þetta ætti t.d. við um belgíska háskóla í heild sinni, en mjög fáir þýskir háskólar hefðu tekið slíka afstöðu enda væri Þýskaland af sögulegum ástæðum eitt harðasta stuðningsríki Ísraels. Þá hefðu rektorar tveggja háskóla í Helsinki undirritað sniðgönguyfirlýsingu nýlega. Háskólinn í Lundi hefði ekki lýst yfir sniðgöngu en hvatt til þess að nýta Erasmusstyrki til að auka samstarf við palestínskar háskólastofnanir.

Sviðsstjóri þróunarsviðs spurði hvort atburðirnir á Gaza hefðu vakið hliðstæðar umræður innan EUA og þegar Rússland réðst inn í Úkraínu og hvort nálægð við atburðina skipti etv. máli. Víða í heiminum væru styrjaldarátök, t.d. í Súdan, án þess að það kæmist inn í umræðuna í okkar heimshluta.

Rektor benti á að þótt það væri ekki hlutverk okkar sem háskólasamfélags að fordæma öll stríðsátök í heiminum gegndi öðru máli þegar ráðist væri á háskólastofnanir eða akademískt frelsi, enda gæti slíkt haft bein áhrif á okkur sjálf.

Fulltrúi stúdenta í háskólaráði þakkaði fyrir góðar kynningar og umræðu, en sagði að umræðan mætti ekki aðeins snúast um mögulega sniðgöngu ísraelskra menntastofnana heldur ætti einnig að ræða sniðgöngu ísraelskra fjármálafyrirtækja. Þannig væru margir stúdentar ósáttir við að þurfa að greiða ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtækinu Rapyd þóknun þegar þeir greiddu árlegt skrásetningargjald sitt til Háskóla Íslands. Varpaði hann í þessu sambandi fram þeirri spurningu, hvort sniðgöngu slíkra fyrirtækja fylgdi fjárhagsleg áhætta fyrir háskólann, s.s. vegna rannsóknastyrkja eða nemendaskipta.

Rektor þakkaði stúdentafulltrúanum fyrir að benda á stöðu og ábyrgð Háskóla Íslands sem sjálfstæðrar menntastofnunar, en benti á að ástæðan fyrir því að skólinn nýtti greiðslumiðlun Rapyd væri sú að Ríkiskaup hefðu gert rammasamning við fyrirtækið sem gerði okkur erfitt um vik.

Deildarforseti Matvæla- og næringarfræðideildar tók upp umræðuna um stöðu mála í Belgíu og sagði að háskólar þar í landi hefðu beitt sér fyrir því að stjórnvöld meinuðu ísraelskum fræðimönnum að taka þátt í rannsóknaáætlunum Evrópusambandsins. Sagði hann koma til álita að íslenskir háskólar gerðu slíkt hið sama og væri það Háskóla Íslands til sóma. Vissulega geta einhverjir fjárhagslegir hagmunir verið í húfi, en það væri líka dýrt að taka ekki afstöðu. Einnig ræddi hann ábyrgðarhugtakið og tengsl einstaklingsábyrgðar og stofnanaábyrgðar. Þannig mætti t.d. spyrja hvort einstaklingar sem taka afstöðu geti með því jafnvel gengið gegn þeim stofnunum sem þeir starfa hjá. Einnig hvort hafa þurfi í huga hvort þróun tækni eða tækja geti mögulega nýst í hernaði. Hver ber ábyrgð á slíku, er það einstaklingurinn eða stofnunin sem hann starfar hjá?

Forseti Hugvísindasviðs tók upp þráðinn varðandi samanburðinn á viðbrögðunum við innrás Rússlands í Úkraínu og árás Ísraels á Gaza og sagði að í fyrrnefnda tilvikinu hefðu viðbrögðin náð lengra en til stofnanalegrar sniðgöngu, en viðbrögðin við síðarnefnda tilvikinu væru ómarkvissari. Vissulega gætu háskólastofnanir á Vesturlöndum ekki tekið afstöðu til stríðsátaka um allan heim, en við ættum þó í miklum efnahagslegum og menningarbundnum samskiptum við Ísrael og því væri ekki síður um okkar ‚bakgarð‘ að ræða en í tilviki Úkraínu. Sama mætti segja um Suður-Afríku. Við þetta bætist að það hefur verið staðfest af málsmetandi alþjóðastofnunum að í Ísrael hafi verið framið þjóðarmorð.

Deildarforseti Stjórnmálafræðideildar lagði orð í belg um greinarmuninn á sniðgöngu af hálfu stofnana, tilmæla til einstakra akademískra starfsmanna um að stofna ekki til samstarfs eða rétt þeirra til að ákvörðun um slíkt að eigin frumkvæði. Hvaða leið sem mögulega yrði farin þyrfti að gæta vel að því hvernig hún yrði orðuð þannig að starfsfólki fyndist það ekki neytt til að taka þátt í sniðgöngu.

Rektor áréttaði að ekki lægju fyrir þinginu tillögur að ályktunum þótt möguleiki á slíku væri nefndur í greinargerð rökræðuhópsins. Umræðurnar á þinginu virtust engu að síður fela í sér þau skilaboð að Háskóli Íslands ætti að móta sér eitthvert ferli eða verklag í því tilviki að aftur verði ráðist á ríki eða menntastofnanir sem skólinn er í nánum tengslum við.

Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs sagði að nú virtist stríðið á Gaza vera í rénun eða að stöðvast og því væri e.t.v. rétt að leggja áherslu á að draga af því lærdóma og horfa til framtíðar. Í því sambandi væri rétt að hafa í huga að Háskóli Íslands er ríkisstofnun og helsta auðkenni starfsemi hans er akademískt frelsi og því ætti áherslan að vera á að verja það.

Deildarforseti Deildar faggreinakennslu sagði að við værum þegar búin að stíga inn á hið pólitíska svið og hefðu m.a. allar fjórar deildir Menntavísindasviðs þegar samþykkt akademíska sniðgöngu, auk einstakra annarra deilda á Hugvísindasviði og Félagsvísindasviði, og ynnu þær eftir því. Þetta væru viðbrögð frá grasrótinni, svona ‚bottom up‘, og það sem næst þyrfti að gera væri að skilgreina verklag fyrir sambærilegar aðstæður ‚top down‘. Þetta væri mikilvægara en að háskólaþing sendi nú frá sér ályktun.

Fleiri tóku ekki til máls og að lokum þakkaði rektor framsögufólki og þingfulltrúum fyrir góðar kynningar og umræður. Sagðist rektor líta svo á að það væri hennar verkefni að beita sér fyrir því á vettvangi háskólaráðs að mótað verði verklag um viðbrögð til framtíðar þegar upp koma sambærilegar aðstæður.

Fleira var ekki gert og sleit rektor háskólaþingi og bauð þingfulltrúum að þiggja léttar veitingar í anddyri Aðalbyggingar.

Til máls tóku undir þessum lið, auk rektors, Ann Sofie Nielsen-Gremaud, Andri Már Tómasson, Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson, Björn Þorsteinsson, Eva Heiða Önnudóttir, Eva Marín Hlynsdóttir, Gauti Kristmannsson, Gísli Magnússon, Heiða María Sigurðardóttir, Katrín Jakobsdóttir, Magnús Þór Torfason, Ólafur Ögmundarson, Ólöf Garðarsdóttir, Ragný Þóra Guðjohnsen, Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, Sigurður Magnús Garðarsson, Sæunn Stefánsdóttir og Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir.

Útsend gögn fyrir 35. háskólaþing 19. nóvember 2025:

  1. Dagskrá 35. háskólaþings 19. nóvember 2025.
  2. Fundargerð 34. háskólaþings 20. nóvember 2024.
  3. Listi yfir fulltrúa á háskólaþingi.
  4. Skilagrein þátttakenda í rökræðupallborði – (háskóla)borgarapanel.
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil