Á hverjum fimmtudegi kemur hópur nemenda, kennara og starfsfólks Fiskeldis- og fiskalíffræðideildar Háskóla Íslands á Hólum saman í hádeginu til að taka þátt í skemmtilegu framtaki sem kallast Science Lunch, eða Vísindahádegi. Þar er íslenskunám fléttað saman við vísindi, leiki og góðar samverustundir.
Verkefnið var sett af stað að frumkvæði Sabine, doktorsnema við deildina, og er ætlað að skapa skemmtilegan og afslappaðan vettvang þar sem nemendur, kennarar og starfsfólk af erlendum uppruna geta komið saman, spjallað og æft sig í íslensku.
Hugmyndin er einföld: Þátttakendur hittast í hádeginu, njóta samverunnar og nýta tímann til að læra íslensku í gegnum viðfangsefni sem tengjast þeirra eigin námi og störfum. Með leikjum, umræðum og fjölbreyttum verkefnum er vísindalegur orðaforði gerður aðgengilegri og skemmtilegri.
Í hverri viku takast þátttakendur á við nýjar áskoranir sem reyna bæði á íslenskukunnáttu þeirra og þekkingu á fiskum og vatnalíffræði. Markmiðið er að byggja upp íslenskan orðaforða sem nýtist þeim í daglegu starfi og námi, um leið og þau fá tækifæri til að kynnast betur.