Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit er meðal tuttugu rannsóknastofnana í sex löndum sem hlotið hafa styrk frá Nordforsk til að rannsaka þörungaeiturefni í fæðukeðju sjávar og viðhorf til sjávarafurða með tilliti til sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum. Alls koma tæplega fimmtíu vísinda- og fræðimenn að þessu þverfaglega verkefni sem nefnist PHATE: Þörungaeitur í fæðukeðju sjávar á norðurslóðum á tímum loftslagsbreytinga. Hlutverk rannsóknasetursins í Þingeyjarsveit verður að safna íslenskum, rituðum heimildum um skelfisk og greina þær í samvinnu við Hafrannsóknastofnun, sem einnig tekur þátt í eiturefnamælingum í líffræðilegum hluta verkefnisins.

Áhersla er á að rannsaka þörungaeiturefni í fæðukeðju sjávar og viðhorf til sjávarafurða með tilliti til sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum.
Loftslagsbreytingar hafa veruleg áhrif á vistkerfi sjávar á norðurslóðum og þar með bein áhrif á fæðuöryggi. PHATE-verkefnið miðar að því að auka skilning á dreifingu eitrunar- og mengunarefna í Norður-Atlantshafi og meta þá áhættu og þær áskoranir sem fylgja loftslagsbreytingum hvað varðar sjálfbærni og fæðuöryggi. Hluti af því ferli er að beina sjónum að menningarlegum og félagslegum þáttum, svo sem staðbundinni þekkingu og viðhorfi til sjávarafurða og heilsu, sem forsendu sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum.
Á Grænlandi og í Kanada eru vísbendingar um veiðar og neyslu á skelfiski, fiski, sjávarspendýrum og sjófuglum í árþúsundir. Á Íslandi og í Færeyjum er hins vegar lítið sem bendir til þess að skelfiskur hafi verið nýttur til matar. Túlkun á niðurstöðum rannsókna á skriflegum heimildum og öðrum menningartengdum þáttum verður fléttað saman við túlkun líffræðilegra, umhverfisfræðilegra, heilsufræðilegra og mannfræðilegra gagna sem aflað verður í öðrum hlutum verkefnisins. Niðurstöðurnar munu gefa nýja innsýn í menningarlega og samfélagslega þætti sem hafa áhrif á nýtingu sjávarafurða. Markmiðið er að þróa ný verkfæri til eftirlits og stefnumótunar fyrir verndun og nýtingu sjávarauðlinda á tímum loftslagsbreytinga.
