Ragna María Sverrisdóttir, nemandi á þriðja ári í stærðfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hefur hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur. Upphæð verðlaunanna nemur 15.000 bandaríkjadölum, jafnvirði 1,8 milljóna króna.
Ragna María Sverrisdóttir lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 2024. Í framhaldsskóla tók hún þátt í ýmsum raungreinakeppnum og keppti á bæði Ólympíuleikunum í stærðfræði og eðlisfræði. Ragna hefur unnið við dæmatímakennslu í Háskóla Íslands og tekið þátt í að undirbúa nemendur Verzlunarskólans fyrir stærðfræðikeppnir. Árið 2025 var hún í sumarnámi við Stanford-háskóla í Kaliforníu og sumarið 2026 starfaði hún hjá hugbúnaðarfyrirtækinu APRÓ. Eftir útskrift stefnir Ragna á stærðfræðitengt nám erlendis.